Átti Ísland málsvara?

Jón Magnússon skrifar:
Stækkunarstjóri ESB, Marta Kos hélt því fram á fundi utanríkisráðherra ESB ríkja,Íslands, Noregs, Sviss og Kanada í dag, að mikil upplýsingaóreiða og falsfréttir hafi verið í kringum þjóðaratkvæðagreiðsluna á Íslandi um aðildvarviðræður við ESB. Svo mátti skilja að þessi atriði falsfréttir og upplýsingaóreiða hefði ráðið niðurstöðunni.
Svo var að skilja að Pópúlistar sem eru á móti ESB og þeir sem aðhyllast Maga hugmyndafræðina (Make America great again)hefðu þar ráðið miklu eins og sérstakir vinir og stuðningsmenn Þorgerðar Katrínar utanríkisráðhera, þeir Þorsteinn Pálsson fyrrum forsætisráðherra og Ólafur Arnarsson málpípa hafa haldið fram reglulega í málflutningi sínum og skrifum.
En hver skyldi nú hafa verið fyrir Íslands hönd við borðið til að mótmæla þessum ranghugmyndum Mörtu? Já og hver skyldi hafa leiðrétt þennan fáránleika stækkunarstjóra ESB?
Fulltrúi Íslands á þessum ráðherrafundi er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og engum fregnum fer af því að hún hafi mótmælt þessum ásökunum Mörtu Kos stækkunarstjóra, sem fela í sér athugasemdir við íslenskt lýðræði og framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Þetta dæmi sýnir hvað það er fráleitt að núverandi utanríkisráðherra sitji áfram og sé málsvari Íslands eftir að hafa tapað í þjóðaratkvæðagreiðslunni og láti svona rugli og atlögu að íslensku lýðræði ósvarað. Við erum þjóð, sem hefur metnað til að standa sig og við eigum ekki að láta ata okkur auri á alþjóðavettvangi og eiga engan til að hrekja óhróður og rangfærslur sem þessar.