Átta sóttu um embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar. Embættið var auglýst í byrjun maí og verður skipað í það til fimm ára. Umsækjendurnir eru:
- Arnljótur Bjarki Bergsson sjávarútvegsfræðingur,
- Eggert Benedikt Guðmundsson, settur forstjóri,
- Guðmundur Jóhann Óskarsson sviðsstjóri,
- Guðmundur Þórðarson samningamaður,
- Hrönn Egilsdóttur sviðsstjóri,
- Kristín Harðardóttir fiskifræðingur,
- Logi Einarsson verkfræðingur og
- Óliver Snær Stefánsson nemi.