Að minnsta kosti átta voru drepnir og tíu eru særðir eftir fangauppreisn í tveimur fangelsum í Ekvador í gær. Uppreisnirnar voru í Cotopaxi-fangelsi og í Pichincha-fangelsi í Ekvador.
Yfirvöld segja að búið sé að bera kennsl á þá sem bera ábyrgð á fangauppreisninni og þeir verði fluttir í hámarksöryggisfangelsið El Encuentro. Fangelsið var byggt af ríkisstjórn forsetans Daniels Noboa fyrir harðsvíruðustu glæpamenn landsins.
Yfir fimm hundruð fangar hafa verið drepnir í fangelsum í Ekvador síðan 2021. Sum fangelsi eru undir stjórn hersins en erfiðlega gengur að hafa stjórn á gengjum eiturlyfjasmyglara í fangelsunum, sem fyrirskipa morð og kúgun innan veggja fangelsanna.
Ekvador var eitt sinn með öruggustu löndum Suður-Ameríku en tíðni ofbeldisglæpa í landinu hefur rokið upp undanfarin ár. Noboa, sem var kjörinn forseti árið 2023 og endurkjörinn í apríl á síðasta ári, hefur tekið harkalega stefnu gegn glæpagengjum, meðal annars með því að senda hermenn út á götur til að sinna eftirliti.