Ásakanir Þjóðverja um að Rússar beri ábyrgð á tilraun til drónaárásar í Leipzig setja svip sinn á fund utanríkisráðherra Evrópusambandsríkja á Írlandi í dag. Þetta er óformlegur fundur sem haldinn er tvisvar á ári. Hann kallast Gymnich-fundur, eftir fyrsta fundarstað utanríkisráðherranna í Þýskalandi 1974.
Auk utanríkisráðherra ESB-ríkja sækja fundinn utanríkisráðherrar Kanada, Sviss, Noregs og Bretlands, auk Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra Íslands. Þetta er fyrsti fundur hennar með fulltrúum aðildarríkja ESB eftir að Íslendingar höfnuðu áframhaldandi viðræðum við sambandið í nýafstaðinni þjóðaratkvæðagreiðslu.