Landsréttur staðfesti á dögunum gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni sem dvalið hefur ólöglega á Schengen-svæðinu árum saman.
Lögregla stöðvaði manninn við akstur í Reykjavík 13. júlí. Hann reyndist vera með útrunnið dvalarleyfi og verður vísað úr landi.
Þegar lögregla fletti manninum upp í upplýsingakerfi Schengen kom í ljós að hann sætti endurkomubanni á Schengen-svæðinu til 2028. Lögregla fór því að dvalarstað mannsins og virtist sem hann hygði á brottför. Eftir að maðurinn fékk endurkomubann í Sviss dvaldi hann í Þýskalandi og á Spáni og að lokum í þrjú ár í Póllandi áður en hann kom hingað. Hann sætir gæsluvarðhaldi fram í næstu viku.