Enska knattspyrnufélagið Arsenal er að ganga frá nýjum samningi við Spánverjann Mikel Arteta, stjóra karlaliðsins.
Frá þessu greinir breska ríkisútvarpið, BBC. Samkvæmt heimildum miðilsins munu laun Arteta hækka verulega og rúmlega tvöfaldast.
Með nýja samningnum verður hann launahæsti knattspyrnustjóri ensku úrvalsdeildarinnar þar sem Pep Guardiola, stjóri Manchester City, er að hætta.
Arteta gerði Arsenal að Englandsmeisturum í síðasta mánuði en ásamt því töpuðu skytturnar fyrir París SG í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á laugardaginn var.
Núverandi árslaun Arteta eru talin nema um 10 milljónum punda, en samkvæmt nýjum samningi mun hann þéna um 20 milljónir punda á ári.