Ný borgarstjórn kom saman á sínum fyrsta formlega fundi og voru þar allir oddvitar nema Ari Edwald.
Í svari til Vísis skrifar Ari að það hafi hist þannig á að hann sé erlendis í nokkra daga og því hafi varamaður hans setið fundinn í hans stað, sem er Hlédís Maren Guðmundsdóttir.
Eins og fram kom við myndun nýs meirihluta Framsóknar, Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks hefur Ara verið boðið að gerast stjórnarformaður í Orkuveitu Reykjavíkur.
Í svari sínu segir Ari að borgarráð, sem kosið var í dag með Einar Þorsteinsson í fararbroddi, muni skipa tilnefningarnefnd sem geri svo tillögu um skipan stjórnar Orkuveitunnar.
„[S]vo það hefur ekki legið á minni ákvörðun,“ skrifar hann. „Hún mun væntanlega liggja fyrir í næstu viku.“
Ari var ekki einn um það að vera fjarverandi en Guðný María Jóhannsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, var ekki heldur viðstödd.