Árekstur varð á hringtorgi við Rauðavatn í Reykjavík klukkan níu í dag. Svo virðist sem flutningabíll hafi lent á fólksbíl. Sá valt og endaði á hliðinni í hringtorginu.
Sjúkraflutningamenn komu á staðinn og huguðu að ökumanni fólksbílsins. Hann verður líklega fluttur á slysadeild til skoðunar en meiðsl hans virðast ekki alvarleg.
Nokkrar tafir verða af þessum sökum meðan fólksbíllinn er fjarlægður. Lögregla stýrir umferð meðan þess gerist þörf.