Ísraelsher og Hezbollah hafa haldið árásum áfram í morgun, þrátt fyrir að aðeins séu nokkrir klukkutímar síðan tilkynnt var um samkomulag um að koma á vopnahléi. Ísraelsher hefur í morgun gert árásir á suðurhluta Líbanons og hótað árásum á höfuðborgina Beirút.
Hezbollah hefur neitað að taka þátt í viðræðum um vopnahlé. Þá tilkynntu samtökin í morgun um árásir á ísraelska hermenn í suðurhluta landsins.
Ísraelsher drap einn, hið minnsta, og særði nokkra í árásum á suðurhluta Líbanons í morgun, samkvæmt Al Jazeera.
Fulltrúar Líbanons og Ísraels ræddu saman á fundi í Washington í gær um leiðir að friði. Ætlunin er að halda viðræðum áfram 22. júní.
Varnarmálaráðherra Ísraels, Israel Katz, sagði í dag að þrátt fyrir samkomulag um vopnahlé hefði Ísraelsher „frelsi“ til að gera árásir á Beirút ef Hezbollah gerir árásir á byggð í Ísrael. Þá sagði hann samningana miða að því að afvopna Hezbollah og að fjarlægja alla liðsmenn þess frá suðurhluta landsins.
Líbanon dróst inn í stríðið þegar Hezbollah hóf árásir á Ísrael eftir að Bandaríkin og Ísrael gerðu árásir á Íran og drápu æðstaklerk landsins 28. febrúar.
Samið var um vopnahlé 17. apríl og hefur það verið framlengt nokkrum sinnum en hefur ekki haldið að fullu. Bæði Ísraelsher og Hezbollah hafa gert árásir síðan þá.
Samkvæmt yfirvöldum í Líbanon hefur Ísraelsher drepið 3.500 manns í landinu síðan í byrjun mars. Þá hefur herinn hrakið fjölda manns frá heimilum sínum í suðurhlutanum. Varnarmálaráðherra Ísraels segir fólkið ekki fá að snúa aftur heim fyrr en Hezbollah-liðar hafi verið afvopnaðir. Það virðist þó ekki í sjónmáli því Hezbollah segist ætla að halda áfram að berjast gegn Ísraelsher.