Bandaríski herinn gerði miklar árásir á hernaðarlega innviði í Íran í nótt. Þetta er níunda nóttin í röð sem Íranar og Bandaríkjamenn gera árásir á skotmörk í Mið-Austurlöndum.
Í fréttatilkynningu bandaríska hersins, segir að árásirnar í nótt hafi beinst gegn stjórnstöðvum íranska hersins og hernaðarmannvirkjum. Íranski fjölmiðillinn Tasnim segir að sprengingar hafi heyrst á nokkrum stöðum í landinu.
Íranski byltingarvörðurinn segist hafa ráðist á bandarísk skotmörk í Kúveit í nótt. Í yfirlýsingu hersins á ríkisfjölmiðli Írana kom fram að árás hafi verið gerð á ratsjárkerfi og hergögn og drónaskýli á Ali Al Salem flugherstöðinni. Íranski herinn gerði einnig flugskeytaárásir á Aqaba-flugvöllinn í Jórdaníu.
Bandarískur hermaður féll í sprengingu sem varð þegar verið var að sprengja íranskan dróna sem hafði fallið til jarðar í norðurhluta Írak í gær. Þetta er sautjándi bandaríski hermaðurinn sem fellur í Mið-Austurlöndum síðan Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran 28. febrúar.
The Guardian segir að yfir 420 bandarískir hermenn hafi særst í árásunum síðan átökin hófust í lok febrúar. Heilbrigðisráðuneytið í Íran segir að 50 hafi verið drepnir og yfir 500 hafi særst í árásum Bandaríkjahers á síðustu þremur vikum.