Fimm voru drepnir, þar á meðal barn og 48 særðust í árásum Ísraelshers á suðurhluta Líbanon á þriðjudag. Þetta hefur AFP-fréttaveitan eftir heilbrigðisráðuneytinu í Líbanon.
Læknir og fimm heilbrigðisstarfsmenn til viðbótar eru í hópi þeirra sem særðust.
Svo virðist sem staðbundið vopnahlé Hezbollah-samtakanna og Ísraels haldi. Samkomulagið kveður á um að Ísraelsher geri ekki árásir á líbönsku höfuðborgina Beirút og að Hezbollah geri ekki árásir á Ísrael.
Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá samkomulaginu seint á mánudagskvöld. Stríð Ísraels og Hezbollah hefur staðið friðarviðræðum milli Bandaríkjanna og Írans fyrir þrifum.
Í frétt BBC segir að eftir að staðbundið vopnahlé komst á hafi Ísraelshers greint frá því að hann hefði skotið niður tvö flugskeyti sem beint var gegn norðurhluta Ísraels. Hezbollah segir aftur á móti að flugskeytunum hafi verið beint gegn sveitum Ísraelshers í suðurhluta Líbanon.