Maður sem grunaður er um að standa að baki skotárásinni í Nørresundby norðan við Álaborg í Danmörku í gær hefur játað verknaðinn. Hann var leiddur fyrir dómara í Hjørring í dag.
Maðurinn, sem er 48 ára gamall, skaut 62 ára mann til bana. Hann er einnig ákærður fyrir að hafa reynt að myrða lögreglumann sem særðist á fæti í skotárásinni.
Fyrir dómi gekkst maðurinn við því að hafa skotið lögreglumanninn en hann neitaði því að ætlunin hafi verið að bana honum.
Hinn grunaði særðist sjálfur í gær og hlaut skotsár á hálsi þegar lögregla svaraði skothríð hans. Hann er ekki lengur í lífshættu og gat því mætt sjálfur fyrir dóminn í dag.
Dómari í málinu hafnaði kröfu saksóknara um lokað þinghald og kröfu verjanda um nafnleynd. Hins vegar ákvað hann að leggja frásagnarbann við þinghaldinu og mega fjölmiðlar því ekki greina frekar frá því sem þar kemur fram.
Danska lögreglan telur hinn látna líklega ekki hafa þekkt árásarmanninn. Ástæða árásarinnar er enn óþekkt en lögregla telur hana hvorki tengjast skipulagðri glæpastarfsemi né vera hluta af stærri atburðarás.