Sex voru drepnir og tveir slösuðust í árás á tyrkneskt flutningaskip á Svartahafi, nærri hafnarborginni Odesu í Úkraínu í gær. Í áhöfn skipsins eru meðal annars ríkisborgarar Sýrlands og Indlands, en átta þeirra var bjargað. Fjögurra er þó enn saknað.
Skipið, Golden Leo, er í eigu tyrknesks fyrirtækis en siglir undir fána Guineu-Bissau. Úkraínski sjóherinn segir að Rússar hafi skotið þremur flugskeytum á skipið þegar það var að sigla frá Odessu með korn.