Einn var drepinn og átta særðust í árás á alþjóðaflugvöllinn í Dammam í Sádi-Arabíu í kvöld. Flugmálayfirvöld landsins greindu frá þessu. Ekki var gefið upp hvers konar árás var gerð en áverkar þeirra sem særðust voru mismiklir. Verið er að meta tjón á flugvellinum.
Bandarísk yfirvöld hafa skipað hluta af starfsfólki bandaríska sendiráðsins í Sádi-Arabíu og fjölskyldum þeirra að yfirgefa landið.
AFP fréttaveitan hefur eftir ónafngreindum heimildarmanni að diplómatar í Mið-Austurlöndum væru einnig að senda starfsfólk sendiráða í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Jórdaníu, Katar og Barein heim á leið með fjölskyldum sínum. Heimildarmaðurinn áréttaði þó að um væri að ræða starfsfólk sem ekki sinnir neyðartilvikum í sendiráðum.
Hútar í Jemen hafa gert skipulagðar árásir á flugvelli í Sádi-Arabíu undanfarið. Mannskæðasta árásin var þegar 12 voru drepnir og yfir 300 særðust í einni slíkri árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad 11. október.
Vopnahléi milli Húta og bandalags undir stjórn Sádi-Araba lauk í júní. Bandalagið styður ríkisstjórnina í Jemen en Hútar njóta stuðnings Írana.