Eldgos hófst rétt fyrir klukkan fjögur aðfaranótt miðvikudagsins 16. júlí. Það var níunda eldgosið í Sundhnúksgígaröð og það síðasta til þessa. Landris við Svartsengi heldur þó áfram. Veðurstofan metur stöðuna þannig að líklegast sé að áframhaldandi hæg kvikusöfnun endi með nýju kvikuhlaupi eða jafnvel eldgosi.
Eldgosið sem hófst fyrir ári síðan stóð yfir í þrjár vikur. Það átti sér nokkurn aðdraganda því kvikuhlaup með ákafri jarðskjálftavinnu hófst rétt fyrir miðnætti daginn áður.
Gossprungan varð um 2,5 kílómetrar þegar hún var lengst en hún ógnaði ekki innviðum. Gasmengunar varð þó vart í byggð á Reykjanesskaga.
Getur endað með eldgosi
„Staðan núna er svo sem svipuð og við höfum séð síðustu mánuði,“ segir Salóme Jórunn Bernharðsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands. „Kvikusöfnun heldur áfram en hún er hæg, landris heldur áfram með stöðugum hraða sem gefur til kynna að það sé enn þá líklegasta sviðsmyndin að það verði nýtt kvikuhlaup austan Svartsengis eins og við höfum varað við síðustu mánuði sem getur síðan endað með eldgosi.“
Um 27 milljónir rúmmetra hafi safnast upp samkvæmt líkönum frá því í júní. Í fyrri atburðum höfðu safnast mest 23 milljónir rúmmetra.
Mesta kvikusöfnun frá upphafi eldgosanna
„Þetta er mesta kvikusöfnun sem við höfum séð eftir að atburðir hófust á Sundhnúksgígaröð. Það allavega viðheldur þeirri stöðu að líklegast er talið að við sjáum kvikuhlaup og mögulega eldgos. En svo þarf bara að þróast enn frekar til þess að sjá hvernig hlutirnir halda áfram.“
Fréttin var uppfærð með viðtali við Salóme Jórunni.