Niðursveiflan sem bitið hefur lúxusvöruframleiðendur á undanförnum árum virðist ekki hrjá Bretana hjá Rolls-Royce, sem kynnt hefur nýjan rafknúinn ofurlúxusbíl í takmörkuðu upplagi.
Pastelbláa frumgerðin, sem nefnist Project Nightingale, er tveggja sæta blæjubíll með rennilegri og straumlínulagaðri hönnun.
Sígilda vélarhlífin er enn til staðar en með bílnum stígur framleiðandinn skref í átt að því að framleiða einungis rafdrifna lúxusbíla.
Innréttingin er ekki af verri gerðinni eins og vænta mátti.
Upplagið er takmarkað við aðeins 100 viðskiptavini og þá einungis fyrir þá sem fá sérstakt boð.
Litirnir eru öllu fleiri, en viðskiptavinirnir geta valið úr yfir 44 þúsund litum.
Rolls-Royce, sem hefur verið í eigu BMW frá árinu 1998, hefur ekki gefið upp verð bílanna en verðbilið mun vera á við það sem gildir um flóknustu sérpantanirnar og aðra sérsmíðaða bíla, sem geta kostað nokkrar milljónir punda.
Merkið hefur verið í eigu BMW í tæp þrjátíuí ár.
Sala framleiðandans dróst lítillega saman á síðasta ári. Alls seldust 5.664 bílar – sem er sex prósenta samdráttur frá metárangri ársins 2023.
Samdrátturinn er þó lítill í samanburði við þann óróa sem önnur lúxusmerki hafa staðið frammi fyrir, eins og breska vörumerkið Burberry.
Reyndar var árið 2025 „fjórða besta ár“ fyrirtækisins, segir sölu- og vörumerkjastjórinn Julian Jenkins.
Lukkudýrið, alsæluandinn sjálfur.
„Við höfum séð aukinn styrk, sérstaklega í sérsmíðinni okkar þar sem viðskiptavinir okkar vilja virkilega panta eitthvað mjög sérstakt, eitthvað einstakt.“
Fyrirtækið veit nú þegar hverjir þessir 100 viðskiptavinir verða og þeir munu fá bílana sína afhenta frá og með árinu 2028.
Þeir eru aðallega búsettir í Bretlandi, Evrópu, Bandaríkjunum og Mið-Austurlöndum, en ekki í Kína, þar sem bíllinn fær að sögn ekki viðurkenningu sökum reglugerða um skilvirkni rafbíla.
Aðeins hundrað eintök verða framleidd.
Gerðin er innblásin af tilraunakenndum háhraða „EX“-gerðum merkisins frá þriðja áratug síðustu aldar. Drægnin hefur ekki verið gefin upp.
Þetta er annar rafmagnsbíllinn úr smiðju Rolls-Royce, en Spectre var kynntur fyrir þremur árum.