Aukin rafleiðni í Múlakvísl bendir til þess að lítið jökulhlaup sé hafið. „Hún hefur verið að aukast hægt og bítandi síðastliðna þrjá sólarhringa og mælist núna um 250 µS/cm sem eru fyrstu viðvörunargildin okkar. Venjulega er hún í kringum 100,“ segir Sigríður Magnea Óskarsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands.
„Vatnshæð hefur ekki aukist í ánni en á vefmyndavélum sést að hún hefur aðeins dreift sér í aðeins fleiri ála. Hún á það til að grafa sig frekar en að vatnshæðin hækki.“
Varað við gasmengun
Í tilkynningu Veðurstofunnar segir að gasmengun mælist í grennd árinnar og ferðamenn því hvattir til að sýna aðgát.
„Þeir sem verða varir við einkenni sem gætu bent til gasmengunar, eins og sviða í augum eða koki, eru hvattir til að yfirgefa svæðið,“ segir í tilkynningunni.
Jarðhitakatlar eiga það til að tæmast síðsumars
Lítið jökulhlaup hófst í Múlakvísl 18. ágúst og stóð í nokkra daga. Þá mældist töluverð gasmengun og há rafleiðni. Hún náði yfir 500 µS/cm þann 19. ágúst.
Sigríður segir ekkert óeðlilegt við að tvö hlaup verði með svo skömmu millibili, það sé ekki óþekkt.
„Það eru margir jarðhitakatlar undir Mýrdalsjökli. Þeir eiga það til að tæmast síðsumars. Stundum ná þeir að tæmast alveg, stundum ekki.“
Fréttin var uppfærð með viðtali við náttúruvársérfræðing.