Smartland greindi fyrst frá tíðindunum.
„Blessað er barnalánið og hjartað stækkar bara við hvert barn,“ sagði Baltasar við mbl í tilefni fregnanna.
Baltasar og Sunneva eignuðust dóttur fyrir tveimur árum og skírðu hana Kilju Kormák. Þau börðust fyrir því að Kormákur yrði leyft sem ættarnafn en það var ekki samþykkt. Baltasar furðaði sig á lögum um ættarnöfn í samtali við mbl fyrir tveimur árum og sagði fjölmörg dæmi um stúlkur með karlmannsnafn sem seinna nafn.
Fyrir utan Kilju á Baltasar fjögur uppkominn börn: Baltasar Breka Samper, Ingibjörgu Sóllilju Baltasarsdóttur, Pálma Kormák Baltasarsson og Storm Jón Kormák Baltasarsson.