Tólf mánaða verðbólga mælist 5,3% samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands og eykst lítillega en hún var 5,2% í síðasta mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,3% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,8%. Niðurstaðan er lítillega yfir spám bankanna sem gerðu allir ráð fyrir að ársverðbólga yrði óbreytt.
Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir alvarlega stöðu vera að teiknast upp.
„Ef þú ferð inn á hagstofan.is þá eru efstu tvær fréttirnar annars vegar þær að verðbólga fer hækkandi og hins vegar að atvinnuleysi fer hækkandi. Þetta tvennt saman er ástand sem er kallað kreppuverðbólga og getur verið mjög alvarlegur vandi sem erfitt er að vinna bug á.“
Halla segir að það sem slái hana mest núna sé að verðbólga án húsnæðisliðar sé líka komin yfir forsenduákvæði kjarasamninga. „Þetta er orðin ansi þung staða.“
Samkvæmt forsenduákvæðinu er heimilt að segja kjarasamningum upp ef verðbólga í næsta mánuði mælist yfir 4,7%. Spár bankanna höfðu þegar bent til þess að ólíklegt væri að viðmiðið næðist á næstu mánuðum. Halla segir að lengi hafi stefnt í að viðmiðin næðust ekki en andvaraleysi hafi einkennt síðustu vikur og mánuði.
Ákveðinn sleggjudómur fyrir ríkisstjórnina
„Þetta sýnir í öllu falli að þau tæki sem bæði Seðlabankinn og ríkisstjórnin eru að beita eru ekki að virka. Við erum ekki að ná árangri í að keyra niður þessa verðbólgu. Það þarf að hugsa út fyrir boxið til að við náum að snúa út af þessari braut.“
Staðan verður metin þegar verðbólgutölur fyrir ágúst verða birtar en þær ráða forsenduákvæðinu.
„Það sem mér finnst breyta mestu máli fyrir okkur er þetta andvaraleysi sem hefur einkennt síðustu mánuði og vikur. Við höfum kallað eftir aðgerðum sem koma okkur af stað í því að ná verðbólgunni niður og gætu gefið okkur forsendur til að láta kjarasamninga halda en núna stefnir allt í að forsendur þeirra bresti án þess að nokkuð hafi verið gert til þess að reyna að sporna við því. Það er mjög alvarleg staða.“
Verkalýðsfélögin hafi ekki önnur stýritæki en að krefjast launahækkana sem haldi í við verðbólgu. „Við höfum verið að kalla eftir því að aðrir aðilar axli ábyrgð þannig að það verði hægt að gera eitthvað annað til að draga úr kostnaði fólks í stað þess að hækka launin.“
Ef það gerist ekki verði að segja upp kjarasamningum.
„Það þarf eitthvað að koma til að þeir geti haldið. Það verður að vera eitthvað sem við höfum í hendi. Þetta horfir ekki mjög bjart við okkur í VR.“