Áhrifavaldurinn umdeildi Andrew Tate og bróðir hans, Tristan Tate, hafa verið handteknir í Bandaríkjunum eftir að bresk ákæruyfirvöld tilkynntu um fjölda nýrra ákæra á hendur þeim. Handtökurnar tengjast framsalsbeiðni Breta.
Bandaríska alríkislögreglan US Marshals tók bræðurna í gæslu laugardaginn 18. júlí. Breska ríkissaksóknaraembættið, Crown Prosecution Service (CPS), hefur farið fram á að þeir verði framseldir til Bretlands, þar sem þeir eiga yfir höfði sér ákærur vegna meintra kynferðisbrota og mansals.
Andrew Tate, sem er 39 ára, hefur nú verið ákærður fyrir sjö ný nauðgunarbrot, þrjú brot vegna skipulagningar eða aðstoðar við mansal í kynferðislegum tilgangi og þrjár líkamsárásir.
Þá hefur hann verið ákærður fyrir 19 brot til viðbótar sem varða ósæmilegar myndir af barni og svokallað öfgaklám.
Tristan Tate, 38 ára, hefur verið ákærður fyrir eina kynferðislega árás, tvö nauðgunarbrot og þrjú brot vegna skipulagningar eða aðstoðar við mansal í kynferðislegum tilgangi.
Meint brot eiga að hafa verið framin á tímabilinu frá júlí 2010 til ágúst 2017.
Sjö meint fórnarlömb
Nýju ákærurnar tengjast fjórum einstaklingum til viðbótar. Alls eru meint fórnarlömb í breska málinu því orðin sjö.
„Ákvarðanirnar um ákærur voru teknar eftir að við fengum frekari gögn frá lögreglunni í Bedfordshire,“ sagði Malcolm McHaffie, yfirmaður sérbrotadeildar CPS.
Bræðurnir stóðu þegar frammi fyrir samtals 21 ákæru í Bretlandi. Andrew hafði áður verið ákærður fyrir tíu brot, þar á meðal þrjár nauðganir, tvö mansalsbrot og að hafa stjórnað vændi í hagnaðarskyni. Tristan hafði áður verið ákærður fyrir ellefu brot, þar á meðal þrjár nauðganir, sex líkamsárásir og tvö mansalsbrot.
Með nýju ákærunum standa bræðurnir því frammi fyrir samtals 59 ákæruliðum í Bretlandi.
Lögmaður segir málið pólitíska árás
Joseph McBride, lögmaður Tate-bræðranna, sagði eftir handtökurnar að þeir væru saklausir og lýsti nýju ákærunum sem pólitískri árás.
Hann hélt því fram að ákærurnar væru settar fram til að bregðast við meiðyrðamáli sem bræðurnir hefðu höfðað í Bandaríkjunum. McBride sagðist þess fullviss að þeir yrðu látnir lausir þegar bandarískur dómari fengi að kynna sér málið.
Andrew og Tristan Tate hafa áður neitað öllum ásökunum um refsiverða háttsemi.
Bræðurnir eru með bæði breskan og bandarískan ríkisborgararétt. Þeir hafa undanfarin ár verið búsettir í Rúmeníu, þar sem þeir sæta einnig sakamálarannsókn. Breska lögreglan fékk árið 2024 útgefnar evrópskar handtökuskipanir á hendur þeim.
CPS leggur áherslu á að ákærurnar feli ekki í sér niðurstöðu um sekt bræðranna. Það sé dómstóla að skera úr um sekt eða sakleysi þeirra.