Spánverjinn Andrés Iniesta er orðinn knattspyrnustjóri karlaliðsins hjá Gulf United sem leikur í Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Þetta staðfesti félagið í dag en Gulf United leikur í næstefstu deild þar í landi.
Þetta er fyrsta stjórastarf Iniesta en hann lagði skóna á hilluna haustið 2024.
Iniesta gerði garðinn frægan sem leikmaður Barcelona frá 2002 til 2018 en hann vann spænsku deildina níu sinnum og Meistaradeild Evrópu fjórum sinnum.
Iniesta átti þá magnaðan landsliðsferil með Spáni og varð tvívegis Evrópumeistari og einu sinni heimsmeistari en hann skoraði sigurmarkið í 1:0-sigri Spánar á Hollandi í úrslitaleik HM í Suður-Afríku árið 2010.