Andarnefjan sem rak á land í Brandsvík við Djúpavog í dag er dauð. Þetta staðfestir lögreglan á Austurlandi við fréttastofu.
Hvalinn rak á land fyrr í dag. Vonir stóðu til þess að hún kæmist aftur út á sjó og það gekk eftir síðdegis. Hana rak hins vegar aftur á land í framhaldinu og er nú öll.