Amanda Seyfried syrgir hundinn Finn

Mamma Mia leikkonan Amanda Seyfried greinir frá því að ástralski fjárhundurinn hennar, Finn, hafi drepist, 16 ára að aldri. Hún minnist hans með áhrifamikilli færslu á Instagram þar sem hún birtir myndir úr samveru þeirra í gegnum árin.
„Þessi er að eilífu,“ skrifaði Seyfried við sjálfu sem hún birti með Finn þann 24. júlí.
Hún deildi einnig fjölda mynda af uppáhaldsstundum þeirra saman, meðal annars af göngu á ströndinni, þar sem Finn stekkur glaður við hlið hennar, og annarri þar sem þau liggja hlið við hlið og herma hvort eftir öðru. Á einni myndinni sjást þau kúra saman og Seyfried skrifaði að hún hygðist halda áfram að deila minningum um hundinn. Skrifaði hún einnig eftirfarandi orð: „Fljúgðu hátt, elsku hundur.“
Fjölmargir þekktir einstaklingar sendu henni samúðarkveðjur, þar á meðal leikkonurnar Olivia Munn og Rachel Brosnahan.
Seyfried tók Finn að sér þegar hún vann við HBO-þættina Big Love. Í viðtali árið 2019 sagði hún að hundurinn hefði gjörbreytt lífi hennar.
„Um sólarhring eftir að ég fékk hann áttaði ég mig á því að ég þurfti á honum að halda. Hann breytti lífi mínu algjörlega og hjálpaði mér að finna sjálfstæði mitt.“
Fyrr á þessu ári fagnaði Seyfried 16 ára afmæli Finns með færslu þar sem hún lýsti honum sem tryggum félaga sem hefði fyllt líf hennar ást og hlýju.
Í viðtali árið 2024 sagðist hún ekki vita hvernig þrítugsár hennar eða ferillinn í Hollywood hefðu orðið án hans.
„Ég veit ekki hvernig ég hefði komist í gegnum Hollywood án Finns. Ég held að ég hafi forðast mikið af vandræðum vegna þess að ég átti alltaf einhvern til að koma heim til.“