Álverksmiðja Norðuráls á Grundartanga er komin í nánast full afköst tíu mánuðum eftir að óvænt bilun varð í rafspennum versins. Bilunin varð til þess að álframleiðslan dróst saman um tvo þriðju hluta enda þurfti að stöðva algerlega framleiðslu í annarri kerlínu versins.
Í frétt Skessuhorns er vísað í þau orð Gunnars Guðlaugssonar forstjóra Norðuráls við Morgunblaðið að mun fyrr hafi tekist að endurgangsetja verksmiðjuna en búist var við síðasta haust.
Gangsetning hófst í apríl og nú er svo komið að verksmiðjan hefur náð 95 prósent afköstum. Vel hafi gengið að útvega nýja spenna og Gunnar segir tvö sett væntanleg til landsins í september.
Ætlunin sé að skipta út fjórum spennasettum sem taki fram á næsta ár en hafi ekki áhrif á framleiðslugetuna.
Heimsmarkaðsverð á áli hefur hækkað mikið, meðal annars vegna samdráttar framleiðslu í Evrópu, þvingunaraðgerða gegn Rússum, verndartolla Bandaríkjaforseta og stríðsins í Mið-Austurlöndum.
Útlit er fyrir að verð haldist hátt áfram. Norðurál tilkynnti í sumar að ekki yrði fækkað starfsmönnum á Grundartanga og nú starfa þar um 670 manns. Framleiðsla í hinni kerlínu Norðuráls var þó áfram stöðug og hafði bilunin engin áhrif á rekstur hennar.
Í apríl var greint frá víðtækum áhrifum bilunarinnar, sem hafi verið mikið áfall fyrir atvinnulíf á Vesturlandi.
Hún var einnig talin geta dregið úr hagvexti á Íslandi um hátt í eitt prósent tækist ekki að koma framleiðslunni í gang fyrr en undir lok árs. Þá var einnig sagt að bilunin hefði valdið tekjumissi fyrir Eimskip og Orkuveituna en Norðurál er einn stærsti viðskiptavinur félaganna tveggja.