Alvarlegustu áhættuþættir heimsins tengjast umhverfismálum
Fimm af tíu alvarlegustu áhættuþáttum næstu tíu árin tengjast umhverfismálum segir í skýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins um alþjóðlega áhættuþætti. „Ég held að mannskepnan eigi svolítið erfitt með að horfa langt fram í tímann, en það er eitthvað sem við þurfum að gera,“ segir Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar Háskóla Íslands.
Helmingur alvarlegustu áhættuþátta á heimsvísu næstu tíu árin tengjast umhverfismálum. Þetta kemur fram í nýjustu skýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins, WEF, sem titluð er The Global Risk Report og metur alþjóðlega áhættuþætti. Í efstu þremur sætunum eru öfgakenndir veðuratburðir, hnignun líffræðilegrar fjölbreytni og hrun vistkerfa og krítískar breytingar á kerfum jarðar. Skortur á auðlindum og mengun skipa sjötta og tíunda sæti listans.
Skýrsla WEF metur alvarleika ólíkra áhættuþátta á heimsvísu bæði til skamms tíma, tveggja ára, og til langs tíma, tíu ára. Yfir 1.300 sérfræðingar úr fræðasamfélaginu, atvinnulífinu, ríkisstjórnum, alþjóðlegum stofnunum og félagasamtökum svara spurningakönnun WEF en greindir eru 33 áhættuþættir í heildina og þeim skipt í fimm áhættuflokka: efnahagur, umhverfi, geópólitík, samfélag og tækni.
Allir hópar sérfræðinganna voru sammála um efstu þrjú sætin í langtímaáskorunum nema sérfræðingar úr atvinnulífinu sem settu misupplýsingar og rangupplýsingar í þriðja sæti og krítískar breytingar á kerfum jarðar í það fjórða.
Þegar litið er til skamms tíma …