Maður slasaðist alvarlega í vinnuslysi í grennd við Kirkjubæjarklaustur í gærkvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi. Slysið varð er maðurinn var að vinna við heyvinnuvél. Þyrla Landhelgisgæslunnar var ræst út og var maðurinn fluttur á bráðadeild, hann er alvarlega slasaður en ekki í lífshættu. Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn á tildrögum slyssins.
Alvarlegt slys í grennd við Kirkjubæjarklaustur