Nói Síríus hefur sett á markað nýtt og tímabundið súkkulaði í tilefni af einstökum náttúruviðburði þegar almyrkvi á sólu verður sýnilegur frá Íslandi þann 12. ágúst 2026. Um er að ræða sjaldgæfan atburð sem sést frá landinu í fyrsta sinn síðan 1954 og hefur þegar vakið mikla athygli bæði innanlands og erlendis.
„Við vildum skapa vöru sem fangar stemninguna í kringum þennan magnaða viðburð,“ segir Anna Fríða Gísladóttir, framkvæmdastjóri markaðssviðs Nóa Síríus.
Súkkulaðið er dökkt 70 prósent súkkulaði með íslensku sjávarsalti sem endurspeglar bæði djúpan tón myrkvans og íslenska náttúru. Að sögn Önnu Fríðu má rekja hugmyndina bæði til aukinna vinsælda dökks súkkulaðis og löngunar til að heiðra þetta einstaka náttúrufyrirbæri.
Hún bætir við að súkkulaðið sé hugsað fyrir breiðan hóp neytenda.
„Þetta er vara sem höfðar jafnt til ferðamanna sem vilja taka með sér minningu frá Íslandi, þeirra sem eru að leita að fallegri gjöf og allra unnenda dökks súkkulaðis sem vilja njóta gæðaafurðar við einstakt tilefni,“ segir Anna Fríða.
Undirbúningurinn hefur verið fræðandi og skemmtilegur
Samkvæmt upplýsingum frá Sævari Helga Bragasyni, sem einnig er þekktur sem Stjörnu Sævar, er almyrkvi á sólu einstök upplifun þar sem tunglið gengur fyrir sólina og hylur hana að fullu í stutta stund sem veldur því að dagsbirtan hverfur tímabundið og umhverfið breytist á örskotsstundu.
„Almyrkvi á sólu er einn áhrifamesti náttúruviðburður sem fólk getur upplifað. Þegar alger myrkvi næst verður eins og kvöld renni yfir landið í nokkrar mínútur og það er upplifun sem gleymist seint,“ segir Sævar Helgi.
Til að njóta almyrkvans á öruggan hátt er mikilvægt að nota sérstök almyrkvagleraugu og bendir Sævar Helgi á að nauðsynlegt sé að horfa aldrei beint á sólina án slíkra gleraugna en þau eru fáanleg á solmyrkvi2026.is.
Anna Fríða segir að undirbúningur innan fyrirtækisins hafi einnig verið fræðandi og skemmtilegur.
„Sævar Helgi kom til okkar og hélt einstaklega áhugaverðan og fræðandi fyrirlestur fyrir starfsfólk sem var mjög vel tekið. Það var mikill áhugi og gleði í hópnum og allir starfsmenn gengu að sjálfsögðu út með bæði almyrkvagleraugu og nýja súkkulaðið í höndunum,“ segir hún. Anna Fríða bætir við að það hafi komið mörgum í opna skjöldu hversu stór viðburður þetta verður. „Flestir eru nú komnir með ráðstafanir fyrir daginn stóra.“
Búist við fjöldanum öllum af gestum til landsins
Gert er ráð fyrir miklum fjölda gesta til landsins í tengslum við almyrkvann og viðburðurinn mun skapa einstaka stemningu um allt land. Fjöldi skemmtiferðaskipa mun einnig verða á hafsvæðinu við Ísland og þúsundir gesta safnast saman til að upplifa þennan sjaldgæfa atburð.
Súkkulaðið frá Nóa Síríus er nú fáanlegt í öllum helstu verslunum landsins sem og á vinsælum ferðamannastöðum þannig að bæði Íslendingar og gestir geta tekið þátt í upplifuninni.
