Fundir eru haldnir á mörgum vígstöðvum um hvernig bregðast á við mikilli verðbólgu og þar með forsendubresti kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Viðsemjendur á almenna vinnumarkaðnum áttu fund fyrir hádegi og Þjóðhagsráð hittist eftir hádegi.
Þjóðhagsráðsfund í dag sátu formenn ríkisstjórnarflokkanna og fjármálaráðherra, forystufólk ASÍ, BHM, BSRB, KÍ, Samtaka atvinnulífsins og Seðlabanka Íslands. Ráðið á að fjalla um stöðu í efnahags- og félagsmálum og ræða samhengi opinberra fjármála, peningastefnu og kjaramála í tengslum við helstu viðfangsefni hagstjórnar hverju sinni. Ætla má að verðbólga hafi verið eitt aðalumræðuefnið í dag.
Í kjarasamningum er kveðið á um að ef ársverðbólga í ágúst er yfir 4,7% má segja samningum upp. Hún mældist 5,6%.
Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins, Landssambands verslunarmanna, VR og fagfélaganna fimm funduðu í morgun um þennan forsendubrest kjarasamninga eins og þeim ber samkvæmt samningnum. Þau hittast aftur í næstu viku og hafa til 8. október til að koma sér saman um viðbrögð. Annars er hægt að fella samninginn úr gildi.
Brýnt að undirbúa aðgerðir svo að samningum verði ekki sagt upp
„Ég hefði óskað þess að sjá kannski lausnamiðaðra samtal,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, um fund þjóðhagsráðs í dag. „Staðan er auðvitað þannig að það er svolítið brýnt að það sé farið að undirbúa betur hvað sé hægt að gera til þess að kjarasamningum sé ekki sagt upp.“
Hún segir að bæði BSRB og ASÍ hafi viljað bæta stöðu þeirra sem lakast standa með samningunum.
„Það hefur ekki raungerst og þetta eru þá helst einstæðir foreldrar, leigjendur og fólk af erlendum uppruna.“
Sveitarfélögin viljug til að koma að samtalinu
Í umræðum um verðbólguþróun hafa gjaldskrárhækkanir sveitarfélaga verið gagnrýndar. Spurður að því hvort sveitarfélögin séu að hugsa sinn gang segir Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS):
„Við auðvitað tökum gagnrýni. Við höfum líka bent á að við teljum að við höfum brugðist mjög oft við á síðustu árum með mjög afgerandi hætti, gjaldfrjálsum skólamáltíðum og fleira.
Sveitarfélögin hafi látið það í ljós að þau vilji koma að samtalinu sem nú á sér stað. „Þetta er bara samvinna okkar allra.“
Spurður að því hvort hann sé vongóður um framhaldið segir Jón Björn: „Já, ég er alltaf vongóður þegar við erum að tala saman. Ég fann alveg að auðvitað er undiralda og þetta er erfitt.“
Verðlag, húsnæðis- og vinnumarkaður í brennidepli
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, segir að endurvekja þurfi forsendur kjarasamninganna.
„Við vildum hafa stöðugt verðlag hér á Íslandi. Við vildum hafa heilbrigðan húsnæðismarkað og við viljum heilbrigðan vinnumarkað. Við erum búin að leggja fram núna, gerðum það strax í maí, okkar tillögur að því hvað þyrfti til þess að kjarasamningar haldi. Ríkisstjórnin er búin að vera með þetta frá þeim tíma og Samtök atvinnulífsins einnig. Við höfum ekki fengið nein endanleg svör frá þeim um hvað af þessu þau vijla ræða við okkur.“
Finnbjörn kveðst vongóður um að viðræður geti hafist fyrir alvöru eftir helgi. Spurður um hvort grípa þurfi til einhverra aðgerða segir hann:
„Það fer algjörlega eftir því hvaða svör við fáum. Fyrirtækin í landinu, þau verða að standa við það að þau séu með stöðugt verðlag. Ríkið og sveitarfélög, þau verða líka að gera það. Almenningur ætlar ekki einn að taka þessa ábyrgð á sig. Þannig að það skiptir verulega miklu máli hvaða svör við fáum við þeim hugmyndum sem við lögðum á borðið í sumar.“