Almar tekur formlega við stöðunni á Landsþingi Sambandsins sem fer fram á Akureyri dagana 23. - 25.september. Hann var einn í framboði og sjálfkjörinn þar sem framboðsfrestur rann út á miðnætti 15. júlí. Jón Björn Hákonarson, fyrrverandi forseti bæjarstjórnar í Fjarðabyggð og nýr sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar, hefur gegnt embættinu frá því í mars 2025.
Hann var endurráðinn bæjarstjóri Garðabæjar í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna í vor en tók fyrst við embætti bæjarstjóra eftir sveitarstjórnarkosningarnar árið 2022.
Þar áður starfaði hann sem framkvæmdastjóri Reiknistofu lífeyrissjóða og sat í bæjarstjórn frá árinu 2014. Einnig hefur hann setið í stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins undanfarin ár.
Almar er uppalinn Garðbæingur og er kvæntur Guðrúnu Zoega hjúkrunarfræðingi.