Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabær, verður nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Almar var einn í framboði og er því sjálfkjörinn en framboðsfrestur rann út á miðnætti í gær.
Mun Almar taka við formennskunni á landsþingi sambandsins sem fram fer á Akureyri dagana 23.-25. september. Jón Björn Hákonarson hefur gegnt formennskunni síðan í fyrra.
Vann góðan sigur í vor
Almar hefur verið bæjarstjóri í Garðabæ síðan árið 2022 en hann leiddi lista Sjálfstæðisflokksins í vor sem vann góðan sigur í bænum og hélt hreinum meirihluta í bænum og bætti við sig bæjarfulltrúa.
Hann hefur einnig setið í stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Almar var framkvæmdastjóri Reiknistofu lífeyrissjóða áður en hann tók við starfi bæjarstjóra.
Hann hefur á sínum starfsferli starfað hjá ýmsum fjármálafyrirtækjum, meðal annars Íslandsbanka og Kviku. Á árunum 2009-2017 var hann framkvæmdastjóri hagsmunasamtaka fyrirtækja, fyrst hjá Félagi atvinnurekenda og síðan hjá Samtökum iðnaðarins.