Mikill verðmunur er á umfelgun og dekkjaskiptum hjá íslenskum dekkjaverkstæðum. Allt að 22.475 krónum getur munað á því hvað bíleigendur greiða fyrir sömu þjónustu, samkvæmt nýrri úttekt verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands (ASÍ).Í úttektinni voru bornar saman verðskrár 29 fyrirtækja á tíu stöðum víðs vegar um landið dagana 13. til 26. október. Alls voru rúmlega eitt þúsund verð skráð og leiðir samanburðurinn í ljós að bíleigendur geta sparað umtalsverðar fjárhæðir með því að kynna sér verð áður en þeir bóka tíma á dekkjaverkstæði.
Allt að 22 þúsund króna verðmunur á umfelgun – Hér er ódýrast og dýrast