Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins í Reykjavík, hafði í tvo mánuði reynt að fá svör frá heilbrigðiseftirlitinu varðandi rekstrarstaði borgarinnar sem hafa fengið athugasemdir frá eftirlitinu. Fyrirspurnina lagði hún aftur fram á fundi ráðsins í gær og fékk hún þá svar.
Í svarinu afsakar Tómas G. Gíslason, framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlitsins, mikla töf á svörum. Tafirnar sagði hann stafa af umfangsmiklum skipulagsbreytingum á heilbrigðiseftirliti á landsvísu en um áramótin færast öll verkefni frá sveitarfélögum til ríkisins. Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins hefur verið sagt upp vegna þessa.
„Þessi áform hafa haft í för með sér verulegt rask á starfsemi embættisins. Starfsfólki HER ásamt framkvæmdastjóra hefur verið sagt upp störfum og hefur það þegar valdið mikilli röskun á daglegum rekstri sem sér ekki fyrir endann á,“ segir í svarinu.
Þá kemur fram að ekki sé hægt að svara fyrirspurn Silju vegna mannaflaþurrðar, uppsagna og aukins álags. Heilbrigðiseftirlitið hafi neyðst til að forgangsraða verkefnum og hefur úrvinnsla samantektarinnar ekki verið í forgangi.
Mikil óvissa hefur ríkt hjá þeim sem sinna heilbrigðiseftirliti síðustu mánuði eftir að Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra tilkynntu um breytingarnar í fyrrasumar. Starfsfólki var tilkynnt að það yrði búið að ganga frá endurráðningum þegar því yrði sagt upp hjá sveitarfélögunum en það gekk ekki eftir.
Pétur Halldórsson, heilbrigðisfulltrúi í Reykjavík, sagði í samtali við fréttastofu um síðustu mánaðamót að það hefði verið mikill uggur innan stéttarinnar og gaf í skyn að tilfinning þeirra sem starfa við eftirlitið væri sú að ríkið væri ekki tilbúið að taka við verkefnunum.