Norðaustan- og austanátt blæs um landið í dag, miskraftmiklar. Hvassast verður syðst á landinu þar sem búast má við allhvössum vindstrengjum fram yfir hádegi.
Á morgun verður breytileg átt, víða gola eða kaldi og rigning eða súld.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Norðaustan og austan 5-13 metrar á sekúndu í dag, en 13-18 syðst fram yfir hádegi. Rigning með köflum, en styttir upp á suðvestanverðu landinu seinnipartinn. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast suðvestantil.
Breytileg átt 3-10 á morgun og lítilsháttar skúrir, en víða rigning eða súld norðan- og austanlands. Hiti 7 til 15 stig, mildast á Suðausturlandi.