Kvikmyndaverið Amazon MGM Studios hefur staðfest að kvikmyndin Ali G: Who Iz I? verði frumsýnd í Bandaríkjunum þann 23. október. Undanfarið hafa borist fregnir af því að myndin væri í bígerð og sést til Barons Cohen við tökur á hinum ýmsu stöðum.
„Þau eru loksins búin að gera heimildarmynd um mig. Og það er ekki þetta kjaftæði um mörgæsirnar. Þessi er með að minnsta kosti tvöfalt meira dýrakynlíf. Ali G: Who Iz I? kemur til ykkar 23/10 hvað sem það þýðir,“ sagði Ali G svo sjálfur í Instagram-færslu.
Ali G er fyrsti grínkarakter Sacha Baron Cohen sem sló í gegn. Hann kom fyrst fram á sjónarsviðið í sjónvarpsþáttunum Comedy Nation, Live from the Lighthouse og The 11 O'Clock Show árið 1998 áður en hann fékk sinn eigin þátt Da Ali G Show frá 2000 til 2004.
Kvikmyndin Ali G In Da House kom út 2002 og síðan hefur Cohen gefið út myndirnar Borat (2006), Brüno (2009), The Dictator (2012) og Borat Subsequent Moviefilm (2020).