Ekki eru neinar samræmdar reglur um aldurstakmark í útiklefa sundlauga landsins. Í júlíbyrjun var greint frá því að 18 ára aldurstakmark hefði verið sett í útiklefa sundlauga í Reykjavík þar sem ekki er föst viðvera starfsfólks. Ákvörðunin var tekin til þess að tryggja öryggi barna í laugunum.
Það eru þó ekki allar laugar með aldurstakmark í útiklefa.
Til að mynda eru ekki aldurstakmörk í útiklefa lauga Akureyrarbæjar, Kópavogsbæjar eða Hafnarfjarðar, samkvæmt svörum við fyrirspurn fréttastofu.
Í svari frá Kópavogslaug segir að ekki hafi komið upp nein atvik sem gefi ástæðu til þess að setja aldurstakmark, starfsfólk hafi gott eftirlit með sundlaugagestum í útiklefum.
Fyrir nokkru var sett 16 ára aldurstakmark í útiklefa Sundhallar Selfoss og í útiklefa sundlaugarinnar í Þorlákshöfn.
Í svörum Sundlaugar Selfoss segir að ákvörðunin hafi verið tekin til þess að tryggja öryggi sundgesta en ekki sé hægt að tryggja fasta viðveru starfsfólks í útiklefunum. Börn mega þó vera í fylgd með fullorðnum í útiklefunum.