Aldrei fleiri ungmenni grunuð um ofbeldisbrot

Aldrei fleiri ungmenni grunuð um ofbeldisbrot

Aldrei fleiri ungmenni grunuð um ofbeldisbrot

Ofbeldi nær sífellt til yngri aldurshópa, segja bæði Unnar Þór Bjarnason samfélagslögreglumaður og Soffía Ámundadóttir, kennari og sérfræðingur í hegðunarvanda ungmenna, sem var umfjöllunarefni Kastljóss í kvöld.

Tilkynningum um ofbeldi meðal ungmenna hefur fjölgað undanfarin ár. Í fyrra voru 188 ólögráða einstaklingar grunaðir í ofbeldismálum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þeir hafa ekki verið fleiri í 18 ár, samkvæmt bráðabirgðatölum. Fjöldi sakborninga í fyrra er tvöfalt meiri en meðaltalið og aukning um 40 frá árinu 2024 og um 70 síðan 2023. 57 voru skráð fyrir fleiri en einu broti í fyrra og fimmtán þeirra voru skráð með fjögur eða fleiri brot það ár.

Meðal verkefna samfélagslögreglu er að heimsækja félagsmiðstöðvar og fræða unglinga og börn um ýmsar birtingarmyndir ofbeldis, til dæmis á samfélagsmiðlum. Unnar segir að til að byrja með hafi verið einblínt á unglingastigið og upp í menntaskóla en að nú nái fræðslan allt niður í fjórða bekk.

„Við erum bæði að fræða um hvað stafrænt ofbeldi er og við erum að kenna þeim leiðir til að tilkynna það og fá aðstoð.“

Aukinn sýnileiki ofbeldis á samfélagsmiðlum

Tilfinning margra er að ofbeldi sé að verða sýnilegra og nær börnunum, til dæmis á samfélagsmiðlum. Á Instagram og Snapchat eru fjölmörg myndbönd af slagsmálum opin öllum. Þar er oftast hópur barna eða unglinga sem ræðst á einhvern einn.

Í fræðslunni talar Unnar beinskeitt til unglinganna: „Ef við kryfjum þetta aðeins, í langflestum tilvikum er verið að níðast á einhverjum saklausum, berja hann í klessu eða láta hann sleikja einhvern skó. Þetta er ógeðslegt. Þetta er ekki fallegt efni fyrir ykkur til að followa. Svo erum við orðin eitthvað svo brengluð, þú ert ekki að læka neitt eða áframsenda á einhvern, þú ert bara passive scroller, að sjá einhvern laminn í Garðabæ eða Hamraborginni er orðið bara einhvern veginn venjulegt. Þetta á ekki að vera það, við eigum að reporta þetta og unfollowa.“

Samfélagslögreglan segir mikilvægt að foreldrar séu meðvitaðir og vakandi fyrir hættum sem fylgja samfélagsmiðlum og símanotkun.

Samstarfskona Unnars Þórs í samfélagslögreglunni, Dóra Kristný Gunnarsdóttir, segir mikilvægt að foreldrar viti hvar börnin eru, hvað þau eru að gera í símanum, þekki vini þeirra og foreldra vina þeirra. Þá sé samvera með foreldrum mikil forvörn.

Samfélagslögreglan varar börn og foreldra einnig við vinsælum símaleikjum á borð við Roblox, þar sem eldri einstaklingar leita sér að yngri fórnarlömbum.

Lögregla segir að til að fá betri innsýn í þróun ofbeldis meðal ungmenna þurfi að skoða atvikaskráningar í skólum og niðurstöður í ungmennarannsóknum. Dóra og Unnar segja að líklega hafi tilkynningum um brot fjölgað eftir að samfélagslögreglan tók til starfa fyrir sjö árum. Dóra bendir á að aukninguna megi þó ekki endilega rekja til aukins ofbeldis, heldur geti verið að börn og unglingar tilkynni frekar ofbeldi eftir að hafa fengið fræðslu frá samfélagslögreglunni.

Hegðunarvandinn kominn niður í leikskóla

Soffía Ámundadóttir, sem kennir námskeið um ofbeldi og hegðunarvanda nemenda, tekur undir að ofbeldið sé að færast á yngri aldurshópa. Það komi henni mest á óvart að hegðunarvandinn sé kominn niður í leikskóla þar sem hún hafi veitt fræðslu eftir að barn hafi brotið hurðir og húsgögn. Málin séu þyngri og hegðunarvandinn vaxandi.

Birtingarmyndir ofbeldis eru mismunandi eftir aldri. Soffía segir að meðal yngri barna sé ofbeldi helst líkamlegt, þegar samskipta- og félagsfærni vanti, en á mið- og unglingastigi færist það yfir í andlegt. Það geti verið alveg jafn slæmt fyrir þolandann.

Mikil umræða og vakning varð fyrir tveimur árum eftir að 17 ára stúlka lést eftir hnífaárás á Menningarnótt. Í kjölfarið setti Ásmundur Einar Daðason, þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, á fót aðgerðarhóp vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum. Aðgerðarhópurinn kynnti 25 aðgerðir til að bregðast við þessari þróun haustið 2024. Meðal aðgerða voru að efla Flotann – flakkandi félagsmiðstöð, koma á skimun fyrir ofbeldi í grunnskólum, verklagi fyrir ósakhæf börn og úrræðum fyrir börn sem beita alvarlegu ofbeldi.

Soffía segir að of lítið hafi gerst, margar aðgerðanna hafi frosið í kerfinu. Betra hefði verið að einbeita sér að færri aðgerðum.

„Að sjálfsögðu er eitthvað af þessu komið til starfa, til dæmis samfélagslöggan og fleira, en við þurfum að gera mikið betur. Ég hefði viljað sjá þarna bara 10 aðgerða lista og ná því.“

Pólitíkin flækist fyrir

Í nýlegri skýrslu sem var unnin fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að álag í grunnskólastarfi hafi aukist á undanförnum árum. Í skýrslunni eru tekin viðtöl við rýnihóp sem starfar í skólum. Ástæðan sem þau nefna oftast fyrir auknu álagi var aukinn hegðunarvandi, bekkjarstjórnunarvandi og að þyngri málum hefði fjölgað. Starfsfólk nefnir að börn tjái sig með ofbeldi og kvartar undan úrræðaleysi. Þau tilkynni atvik til barnaverndar, óski eftir ráðgjafa en þurfi svo að bíða og ekkert gerist.

Soffía tekur undir þessi sjónarmið. Hún segir að fjármagn vanti til að geta veitt sérúrræði. Þá segir hún að pólitíkin flækist oft fyrir. Í stað þess að treysta á sérfræðinga í skólamálum komi á fjögurra ára fresti inn nýr stjórnmálamaður í öðrum flokki sem ætli að setja sitt mark á málin.

„Við þurfum að hugsa skólakerfið meira í samvinnu og samræmi og til lengri tíma. Sem betur fer er margt gott að gerast. Það er rosalega frjótt og flott starf í gangi en við megum ekki gleyma þessum týndu börnum. Við verðum að standa okkur sem samfélag í að hjálpa þeim, þau fengu bara ekki góð spil á hendi.“

Skortur á sérfræðingum

Soffía segir að sum úrræði eigum við hreinlega ekki til. Okkur skorti sérfræðinga. Hún vill sjá fleiri sérfræðinga taka þátt í skólastarfinu með beinum hætti, til að mynda atferlisfræðinga, hegðunarráðgjafa, sálfræðinga og þroskaþjálfa. Hún segir að halda þurfi vel utan um kennara og huga að starfsumhverfi þeirra og -öryggi. Hegðunarvandi sé oft ástæða fyrir því að kennarar hverfi úr starfi.

Að mati Soffíu standa sveitarfélögin sig misvel. Í sumum sveitarfélögum upplifi hún að aðeins sé verið að haka í boxin, fá fræðslu og forvarnir en að ekkert sé svo gert í framhaldinu. Annars staðar séu málin í góðum farvegi og að það skili sér í lægri tíðni hegðunarvanda.

„Börnum, og sérstaklega börnum í vanda, líður langbest í góðum aga, góðum ramma og góðu skipulagi. Það er það sem veitir þeim öryggi svo við þurfum að bæta verulega í þar.“

Vill sjá átak gegn ofbeldi

Soffía segir að takast þurfi á við undirliggjandi áhrif eins og streitu og símanotkun. Dæmi séu um að unglingar eyði allt að 10 klukkutímum í símanotkun daglega.

„Þá ertu farin að lifa mikið í þessum óraunverulega heimi, það er ekki mikið að reyna á þig, að fara í leiki, vera með börnum og því sem við viljum að þau geti, tjáð tilfinningar, læri mörkin og annað.“

Soffía vill að þjóðin fari í átak gegn ofbeldi, líkt og var gert gegn unglingadrykkju og reykingum. Allir séu sammála um að ofbeldi eigi ekki að þrífast í okkar samfélagi.

#aldrei #fleiri #grunuð #ofbeldisbrot #ungmenni


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-06-04-aldrei-fleiri-ungmenni-grunud-um-ofbeldisbrot-477159

📰 Aðrar fréttir

Guðmundur Ingi greindist nýlega með krabbamein – „Ég var heppinn“
📅 22.10.2026 👁️ 1
Guðmundur Ingi greindist nýlega með krabbamein – „Ég var heppinn“
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra og nú þingmaður utan flokka, greindi frá því í ræðustól Alþingis í gær að hann hefði nýlega greinst m...
Mætti í krabbameinsskimun en var send heim óskoðuð
📅 22.10.2026 👁️ 1
Mætti í krabbameinsskimun en var send heim óskoðuð
Konur á aldrinum 23-64 ára fá boð í leghálsskimun með reglubundnum hætti. Konur sem fara reglulega í skimun fyrir leghálskrabbameini eru í minni hættu...
Ung kona leitar að smakki af bláum ópal: „Kv ein sem fæddist ekki á 19 öld og fékk aldrei að upplifa bláan opal“
📅 22.10.2026 👁️ 1
Ung kona leitar að smakki af bláum ópal: „Kv ein sem fæddist ekki á 19 öld og fékk aldrei að upplifa bláan opal“
Margir sem komnir eru á miðjan aldur og yfir muna eftir bláum Ópal. Í september árið 2005 tilkynnti Nói Siríus að framleiðslu hans yrði hætt. Skýringi...
Vantar sex milljónir til að halda Edduna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Vantar sex milljónir til að halda Edduna - Vísir
Þetta kemur fram í nýrri styrkumsókn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, ÍKSA, til fjárlaganefndar. Akademían segir hækkandi kostnað og minn...
Guð­mundur Ingi lét fjar­lægja blett af fætinum - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Guð­mundur Ingi lét fjar­lægja blett af fætinum - Vísir
Guðmundur greindi frá málinu í ræðustól Alþingis í gær. Ræðuna hélt hann í tilefni af bleika deginum sem fór fram í gær. Hann segir mikilvægt að samfé...
Flothringur af sjókví slitnaði frá og fór aftur að reka um Patreksfjörð
📅 22.10.2026 👁️ 1
Flothringur af sjókví slitnaði frá og fór aftur að reka um Patreksfjörð
Eins og greint hefur verið frá í fréttum RÚV strandaði flothringur af sjókví í Patreksfirði um miðjan september. Illa gekk að sækja hringinn sem barði...
After the Show: Low-key evening ideas for Tenerife
📅 22.10.2026 👁️ 1
After the Show: Low-key evening ideas for Tenerife
A big show, concert or comedy night can leave you feeling pleasantly full of noise, colour and conversation, but not quite ready to call it a night. T...
Harka lögreglu í garð mótmælenda kom á óvart
📅 22.10.2026 👁️ 1
Harka lögreglu í garð mótmælenda kom á óvart
Íslenskur kona sem hefur búið í Frakklandi í nær 20 ár segir ekki hafa komið á óvart þegar mótmælin, sem hafa verið í landinu síðustu vikur, hófust. H...
Kveður Víet­nam og heldur á­fram til Kína - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Kveður Víet­nam og heldur á­fram til Kína - Vísir
„Góð tíðindi fyrir íslenskt atvinnulíf frá Víetnam,“ segir Þorgerður Katrín sem hélt utan um síðustu helgi ásamt meðal annars Ingileif Friðriksdóttur ...
Two named storms in two days as Austen and Boelo target UK
📅 22.10.2026 👁️ 1
Two named storms in two days as Austen and Boelo target UK
The Met Office have named a new storm, Boelo, which is set to bring another round of stormy weather to the UK over the weekend.
Seðla­bankinn lagði Þor­stein Má - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Seðla­bankinn lagði Þor­stein Má - Vísir
Dómur þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun og Morgunblaðið greinir frá niðurstöðunni. Málið varðaði upplýsingar sem var að fin...
Segir suma fjölmiðla frekar vilja hafa vit fyrir fólki en að upplýsa það
📅 22.10.2026 👁️ 2
Segir suma fjölmiðla frekar vilja hafa vit fyrir fólki en að upplýsa það
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýnir harðlega fréttaflutning RÚV og fleiri fjölmiðla af óeirðunum í Frakklandi. Hann sakar s...
Inga Sæland sendir skýr skilaboð: „Það mun ekki frestast og nei, ég mun alls ekki hætta við þetta“
📅 22.10.2026 👁️ 2
Inga Sæland sendir skýr skilaboð: „Það mun ekki frestast og nei, ég mun alls ekki hætta við þetta“
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, lætur neikvæðar umsagnir skólasamfélagsins um innleiðingu nýs einkunnakvarða í grunnskólum ekkert á sig fá....
Kári segir óttastjórnun í gangi á vinnustaðnum: „Fólk er að leita sér að annarri vinnu“
📅 22.10.2026 👁️ 2
Kári segir óttastjórnun í gangi á vinnustaðnum: „Fólk er að leita sér að annarri vinnu“
„Uppsagnarhrinunni er ekki lokið,“ segir Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hann ræddi um uppsagnir s...
Seðlabankinn sýknaður af bótakröfu Þorsteins Más
📅 22.10.2026 👁️ 2
Seðlabankinn sýknaður af bótakröfu Þorsteins Más
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Seðlabankanum í vil í miskabótamáli sem Þorsteinn Már Baldvinsson höfðaði gegn bankanum.Dómurinn var kveðinn upp í morgu...
Married at First Sight Australia: Police investigate show after 'inappropriate' allegations
📅 22.10.2026 👁️ 1
Married at First Sight Australia: Police investigate show after 'inappropriate' allegations
New South Wales Police say inquiries took place "following a report of inappropriate content being shared".
Uppgötvuðu augnalausan snigil
📅 22.10.2026 👁️ 2
Uppgötvuðu augnalausan snigil
Vísindamenn hafa uppgötvað áður óþekkta tegund ferskvatnssnigils í helli í Kína.Snigillinn, sem hefur fengið fræðiheitið Erhaia dijiang, hefur aðlagas...
Fólk upp­lifi óttastjórnun hjá Reykja­víkur­borg - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Fólk upp­lifi óttastjórnun hjá Reykja­víkur­borg - Vísir
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, var í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þangað var hann mættur til að ræða hagræðingu í Reykjavík, sem bróðir hans Róbe...
BioWare: Mass Effect and Dragon Age video game studio to close
📅 22.10.2026 👁️ 2
BioWare: Mass Effect and Dragon Age video game studio to close
The influential studio that made Mass Effect and Dragon Age announces it is closing its doors.
Líklegast að það komi ekkert áþreifanlegt úr þessu
📅 22.10.2026 👁️ 2
Líklegast að það komi ekkert áþreifanlegt úr þessu
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir að setja verði mikinn fyrirvara við yfirlýsingar Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að stríðslok í Úk...
Vilja meta áhrif gervigreindar á rekstur borgarinnar
📅 22.10.2026 👁️ 2
Vilja meta áhrif gervigreindar á rekstur borgarinnar
Borgarstjórn samþykkti á þriðjudag að vísa til borgarráðs tillögu Samfylkingarinnar um að vinna heildstæða úttekt á mögulegum áhrifum af notkun gervig...
Útför Matthew Perry lýst í nýrri heimildarmynd - Systir hans segir af hverju hún skellihló
📅 22.10.2026 👁️ 2
Útför Matthew Perry lýst í nýrri heimildarmynd - Systir hans segir af hverju hún skellihló
Systir Matthew Perry greinir frá nýjum, hjartnæmum upplýsingum um einkajarðarför hans.Mary Robertson, leikstjóri Netflix-heimildarmyndarinnar The One ...
Marta María fékk óvæntar ábendingar eftir skrif um sundferð þingmanna
📅 22.10.2026 👁️ 2
Marta María fékk óvæntar ábendingar eftir skrif um sundferð þingmanna
Marta María Winkel, umsjónarmaður Smartlands, segir að eftir skrif hennar um sundferð þingmannanna fimm í Selárlaug nýverið hafi tölvupóstum rignt yfi...
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Viðbrögð Elliða vekja athygli
📅 22.10.2026 👁️ 2
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Viðbrögð Elliða vekja athygli
Jasmina Vajzovic, fyrrverandi varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hefur birt skjáskot af fjölmörgum ummælum sem henni hafa borist á Facebook eftir að hún...
Aurora Abalone lýkur 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu
📅 22.10.2026 👁️ 2
Aurora Abalone lýkur 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu
Félagið Aurora Abalone (Sæbýli hf.) hefur lokið 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu til uppbyggingar 100 tonna árlegrar framleiðslu.Í fréttatilkynni...
„Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
„Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ - Vísir
Hin breska Dench er orðin 91 árs gömul og er ein dáðasta leikkona Bretlands, ef ekki heimsins. Hún hóf leikferilinn á sviði en færði sig svo yfir í kv...
Hvetur stór og smá fyrirtæki til að uppfæra vefi sína
📅 22.10.2026 👁️ 3
Hvetur stór og smá fyrirtæki til að uppfæra vefi sína
Hættuástand vegna öryggisgalla í PHP-forritunarmálinu er ekki yfirstaðið að mati sérfræðings hjá CERT-IS, netöryggissveit íslenskra stjórnvalda. Bjark...
Barclays cutting 5,000 jobs as it increases reliance on AI
📅 22.10.2026 👁️ 2
Barclays cutting 5,000 jobs as it increases reliance on AI
The bank says it is using more AI leading to a 5% reduction in its workforce.
Glaum­gosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Glaum­gosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns - Vísir
Prígósjín-veldið hefur minnkað nokkuð, þar sem stór hluti þess hefur endað í höndum varnarmálaráðuneytis Rússlands en Pavel er enn mjög umsvifamikill ...
Ókunnugur maður sagður hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ókunnugur maður sagður hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um einstakling í bifreið sem sagður var hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla. Lögreglumenn fór...
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Elliði stígur inn í umræðuna
📅 22.10.2026 👁️ 3
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Elliði stígur inn í umræðuna
Jasmina Vajzovic, fyrrverandi varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hefur birt skjáskot af fjölmörgum ummælum sem henni hafa borist á Facebook eftir að hún...
Ástleysið er sárt
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ástleysið er sárt
Ástleysið er sárt Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og...
Geta nú lokað Reykja­nes­brautinni með fjar­stýringu - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Geta nú lokað Reykja­nes­brautinni með fjar­stýringu - Vísir
Frá þessu segir á vef Vegagerðarinnar. Þar kemur fram að ekki þurfi þá lengur að senda lögreglu, björgunarsveitir eða starfsfólk Vegagerðarinnar á sta...
Ótti við ras­ista­stimpil megi ekki stöðva alla um­ræðu - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ótti við ras­ista­stimpil megi ekki stöðva alla um­ræðu - Vísir
Síðustu daga komst Elliði í hann krappan á samfélagsmiðlum þegar hann birti mynd af mönnum sem hann tengdi við óeirðaöldu sem gengur nú yfir Frakkland...
Fasteignamarkaðurinn ekki daufari í 12 ár
📅 22.10.2026 👁️ 3
Fasteignamarkaðurinn ekki daufari í 12 ár
Hvorki kaupverð né leiguverð íbúðarhúsnæðis heldur í við verðbólgu, samkvæmt nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar. Fastei...
Rússar jákvæðir fyrir þríhliða viðræðum við Úkraínu
📅 22.10.2026 👁️ 3
Rússar jákvæðir fyrir þríhliða viðræðum við Úkraínu
Steve Witkoff erindreki Bandaríkjastjórnar og Vladimír Pútín Rússlandsforseti funduðu í Sankti Pétursborg í Rússlandi í gær. Þetta var níundi fundur þ...
Court halts eviction of 70-year-old cancer patient in south Tenerife
📅 22.10.2026 👁️ 3
Court halts eviction of 70-year-old cancer patient in south Tenerife
A court has stopped the eviction of a 70-year-old man with cancer in Guaza, in the south Tenerife municipality, a day before it was due to take place....
Slydda eða snjókoma norðvestan til
📅 22.10.2026 👁️ 3
Slydda eða snjókoma norðvestan til
Íbúar á norðvesturhorninu geta búist við dálítilli slyddu eða snjókomu í dag og víðar á landinu er útlit fyrir skúrir eða slydduél. Norðantil verður þ...
Geymir þú brauðið á þessum stað? Þá ættirðu að hugsa þig tvisvar um
📅 22.10.2026 👁️ 3
Geymir þú brauðið á þessum stað? Þá ættirðu að hugsa þig tvisvar um
Hvar er best að geyma brauð svo það haldist ferskt sem lengst? Í ísskápnum, plastpoka eða brauðkassa? Bakarar segja að margir geri mistök þegar kemur ...
Ekki er kálið sopið... Hvað gerist ef Demókratar taka báðar þingdeildir?
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ekki er kálið sopið... Hvað gerist ef Demókratar taka báðar þingdeildir?
Allt útlit er fyrir að Demókratar nái stjórn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í kosningunum sem fara fram þar í landi þann 3. nóvember. Allar kannanir ...
Ó­leyst ís­lensk ráð­gáta: Veist þú svarið? - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ó­leyst ís­lensk ráð­gáta: Veist þú svarið? - Vísir
Á sama tíma og fornleifafræðingar koma að tómum kofanum standa stærðfræðingar frammi fyrir gagnstæðum vanda. Fyrr í mánuðinum birti gervigreindarfyrir...
Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður - Vísir
Fjölmiðlar, fjölmiðlanefnd og hlaðvörp hafa verið töluvert í umræðunni. Undir Loga Einarssyni eru reyndar fjölmörg önnur mál, svo sem háskólar, nýsköp...
Three pupils hospitalised in viral meningitis outbreak in El Hierro
📅 22.10.2026 👁️ 3
Three pupils hospitalised in viral meningitis outbreak in El Hierro
Health officials have confirmed three cases of viral meningitis linked to pupils at CEIP Tigaday in La Frontera, El Hierro. All of those affected are ...
Murder suspect arrested in Tenerife after 9 years thanks to DNA breakthrough
📅 22.10.2026 👁️ 3
Murder suspect arrested in Tenerife after 9 years thanks to DNA breakthrough
A man has been arrested and sent to prison pending proceedings over the sexual assault and murder of a woman in Tenerife nine years ago.The National P...
Mærður höfundur hankaður á gervigreind
📅 22.10.2026 👁️ 3
Mærður höfundur hankaður á gervigreind
Mærður höfundur hankaður á gervigreind Nýstirni í skáld­sagna­heim­inum hefur orðið fyrir aflýs­ingu eftir að gervi­greind greind­ist í margróm­uðu ve...
Ung­menni gripin við inn­brot - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ung­menni gripin við inn­brot - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar þar sem greint er frá því helsta sem kom upp frá klukkan 17:00 í gær til klukkan 05:00 í nótt. Þar er sagt að l...
Is the UK set to green-light the Rosebank oil field?
📅 22.10.2026 👁️ 3
Is the UK set to green-light the Rosebank oil field?
Scotland editor James Cook visits Rosebank - the UK's largest known untapped oilfield - in the North Atlantic.
THURSDAY WEATHER: Brighter skies in the eastern islands as showers continue further west
📅 22.10.2026 👁️ 3
THURSDAY WEATHER: Brighter skies in the eastern islands as showers continue further west
The Canary Islands will see contrasting weather today, Thursday 22nd October, with improving conditions in the east and a greater chance of rain acros...
Þorsteinn Pálsson skrifar: „Þetta lið“ og tilbeiðsluskattur þess
📅 22.10.2026 👁️ 3
Þorsteinn Pálsson skrifar: „Þetta lið“ og tilbeiðsluskattur þess
Mynd Á dögunum þegar rökleysan í efnahagsumræðunum gekk fram af
Fjögur ungmenni grunuð um innbrot
📅 22.10.2026 👁️ 3
Fjögur ungmenni grunuð um innbrot
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í gær eða nótt um fjögur ungmenni sem voru að brjótast inn í húsnæði í umdæmi 1, sem er Austurbær, M...