Framkvæmdastjóri Smárabíós segir framtíð kvikmyndahúsa bjarta þrátt fyrir áskoranir síðustu ára. Aðsóknarmet hafi verið slegið í síðasta mánuði, þegar 38 þúsund gestir sóttu það heim.
Heildaraðsókn aukist um 20%
Síðustu ár hefur aðsókn í kvikmyndahús landsins dregist saman, meðal annars vegna tilkomu streymisveitna og niðurhals á netinu. En nú virðist sú þróun vera að snúast við.
„Ef við sjáum heildarmarkaðinn og sjáum hvernig hann hefur þróast síðastliðin ár erum við að sjá að þetta ár er upp um sirka 20% frá árinu í fyrra, það er heildaraðsókn á þessu ári. Þannig að þetta stefnir allt í rétta átt,“ segir Konstantín Mikaelsson, framkvæmdastjóri Smárabíós.
Róðurinn hafi þó verið þungur síðustu ár.
„Helstu áskoranirnar hafa verið lítið úrval af bíómyndum, út af verkfalli og covid. Næsta hefur verið gríðarleg samkeppni frá streymisveitum. Það fór á flug í covid og allir að reka eigin streymisveitur í dag. Ólöglegt niðurhal er náttúrulega alltaf fyrir hendi og það eru veitur þarna úti sem gera það.“
Nú horfi hins vegar til betri vegar. Aðsóknarmet var slegið í síðasta mánuði þegar 38 þúsund gestir sóttu Smárabíó heim.
„Það var 125% aukning núna í ágúst hjá okkur frá ágúst í fyrra. Og svo eru búnar að vera þessar tvær risastóru myndir, Spiderman og The Odyssey, sem hafa tröllriðið öllu. Báðar þær myndir eru komnar í 60 þúsund manns á landsvísu, sem er náttúrulega bara alveg frábært.“
Framtíðin björt fyrir kvikmyndahúsin
Heildartekjur kvikmyndahúsanna hafi aukist um tæplega 40% milli ára. Forsvarsmenn annarra kvikmyndahúsa sem fréttastofa ræddi við hafa sömu sögu að segja. Aðsóknin hafi aukist á árinu.
„Ég held að stór faktor sé að myndaúrval sé betra og framleiðslan í Hollywood sé komin aftur á fullt. Það skiptir miklu máli. Svo er fólk að upplifa að framboðið á þessum streymisveitum er ofboðslega mikið af því sama. Þetta er önnur upplifun en að fara bara í bíó og út að borða áður, fólk er farið að sakna þess,“ segir Konstantín.
Þá spili íslenskar kvikmyndir einnig stórt hlutverk.
„Það er búið að vera mjög slakt framboð síðastliðin eitt, tvö ár en það stendur til bóta. Og það er líka mjög stór faktor í því að bíóbransinn lifi er að framboð íslenskra mynda sé í boði.“
Hann blæs á neikvæðar raddir um að kvikmyndahúsin deyi út.
„Þetta mun lifa góðu lífi en auðvitað þurfum við að berjast við þessar ógnanir og allt það. En við munum standa okkur í að bjóða geggjaða upplifun og ég held að öll bíóhúsin ætli sér að gera það.“