Ökumaður bíls sem lenti í umferðarslysi á Suðurlandsvegi nærri Skaftafelli í janúar 2024 hefur verið ákærður fyrir að valda dauða tveggja farþega annars bíls af gáleysi.
Ökumaðurinn ók, samkvæmt ákæru, of hratt miðað við aðstæður, sýndi ekki nægilega aðgæslu og varúð á hálum vegi og hafði ekki fullt vald á bílnum. Afleiðingarnar voru þær að hann missti stjórn á bílnum sem fór yfir á öfugan vegarhelming og hafnaði framan á bíl sem var að koma úr annarri átt. Tveir farþegar þess bíls létust af fjölverkum sem þeir hlutu í slysinu og ökumaður hans slasaðist.
Ökumaðurinn er ákærður fyrir brot á ákvæðum hegningarlaga sem kveða á um að refsa skuli einstaklingi ef gáleysi hans verður til þess að einhver lætur lífið. Hann er einnig ákærður fyrir brot á ákvæðum umferðarlaga sem kveða á um hvernig ökumenn skuli haga akstri sínum.
Allt að sex ára fangelsi liggur við brotum sem ákært er fyrir. Lögmaður aðstandenda þeirra sem létust í slysinu fer fram á 12 milljónir í bætur.
Í ákæru sem fréttastofa fékk afhenta hjá Héraðsdómi Austurlands er bæði búið að hreinsa út upplýsingar um hvenær slysið varð, ef ártal er undanskilið, og hvar á Suðurlandsvegi það varð.
Þó er ljóst af lýsingum í ákæru að hún á við um banaslys á Suðurlandsvegi við Skaftafell 12. janúar 2024. Audi-fólksbíll fór yfir á rangan vegarhelming og lenti framan á Dacia-bíl. Allir fjórir í Audi-bílnum slösuðust. Þar var slysið rakið til þess að ökumaður hefði misst stjórn á bíl sínum í glerhálku.
Í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa voru ökumenn hvattir til að vera vakandi fyrir hálku og við hvaða aðstæður hún gæti helst myndast. Nefndin lagði einnig til að sjúkrabílar og þjálfaðir sjúkraflutningamenn yrðu á fleiri stöðum á Suðurlandi en raunin var til að stytta viðbragðstíma vegna slysa.
Fréttin var uppfærð með upplýsingum um slysið.