Lögreglustjórinn á Austurlandi hefur ákært ökumann fyrir hegningar- og umferðarlagabrot.
Honum er gert að sök að hafa með hraðakstri og gáleysi í varasömum aðstæðum orðið valdur að umferðarslysi á Suðurlandsvegi árið 2024 sem kostaði tvær manneskjur lífið.
Þó dagsetning slyssins og nákvæm staðsetning þess séu afmáð eru málsatvik sem þó koma fram í nákvæmu samræmi við atburðarás banaslyss sem varð skammt vestan við afleggjarann að Skaftafelli í janúar 2024.
Hafnaði á bíl úr gagnstæðri átt
Hinum ákærða er gert að sök að hafa ekið of hratt og án nægilegrar aðgæslu og varúðar, þar sem vegurinn var háll og ástand bílsins ábótavant þar sem slag var í aftari hjólalegu hans hægra megin.
Ökumaðurinn hafi því ekki haft fulla stjórn á bílnum þannig að hann gæti stöðvað á þeim hluta vegarins sem fram undan var með þeim afleiðingum að hann missti stjórn á bílnum, sem fór yfir á öfugan vegahelming og hafnaði á bíl sem ekið var úr gagnstæðri átt.
Farþegarnir létust
Ökumaður hinnar bifreiðarinnar brotnaði á hryggjarlið og farþegarnir tveir, karl og kona, hlutu slíka fjöláverka að þau létust bæði.
Málið var þingfest við Héraðsdóm Austurlands þann 9. júlí.
Þess er krafist að hinn ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar.
Fyrir hönd bílstjórans sem bíll hins ákærða hafnaði á er bótakrafa að fjárhæð átta milljónir króna gerð á ákærða. Arnar Ingvi Ingvarsson fer með þá kröfu, og gerir jafnframt kröfu fyrir hönd dánarbús annarrar manneskjunnar sem lést í slysinu að fjárhæð fjórar milljónir króna.