Fimmtán ára gamall drengur sætir nú ákæru fyrir Héraðsdómi Helsingborgar í Svíþjóð fyrir að kveikja í bílageymslu í Ängelholm aðfaranótt 3. nóvember 2025 og valda með því tjóni á 34 bifreiðum auk þess sem ákæran tekur einnig til myndefnis sem fannst í fórum hans og sýnir börn á kynferðislegan hátt.
Í janúar greindi sænska ríkisútvarpið SVT frá því að eining innan öfgahópsins Com-nätverket, þar sem meðal annars er að finna ofbeldishópinn 764, hefði staðið á bak við fjölda bílbruna í Ängelholm.
„Miðað við gögn rannsóknarinnar hefur ákærði verið viðriðinn haturshópa sem stunda ofbeldi. Eins hefur rannsóknin leitt í ljós að ákærði tók myndskeið af sjálfum sér við framningu brotanna og deildi þeim um netið,“ segir Christofer Linder héraðssaksóknari í fréttatilkynningu.
Annað mál gegn Com-félaga í Umeå
Kemur þar einnig fram að rannsóknin bendi til þess að annar maður, leiðtogi hópsins, hafi einnig staðið á bak við bílbrunana. Sá er nítján ára gamall en er ekki ákærður í málinu.
Í Umeå standa nú yfir réttarhöld í máli manns sem einnig tengist Com-hópnum og meðal annars er grunaður um þrjár tilraunir til manndráps og stórfelld kynferðisbrot gegn börnum.