Tæplega sjötugur karlmaður hefur verið ákærður í Þýskalandi fyrir að byrla og nauðga fjórtán konum. Hann tók kynferðisbrotin upp. Engin kvennanna hafði vitneskju um kynferðisbrotin sem komust upp eftir að lögregla gerði húsleit á heimili mannsins í Berlín í mars.
Þar fundust minnislyklar með fjölda myndskeiða af kynferðisbrotum. Maðurinn er sagður hafa mælt sér mót við konurnar í gegnum stefnumótasíður. Borin hafa verið kennsl á 58 konur við rannsókn málsins. Maðurinn er ákærður fyrir 22 nauðganir á fjórtán konum.