Kona hefur verið ákærð fyrir að auglýsa að hún væri tilbúin til að stunda kynlíf gegn greiðslu en hún var þá staðsett á Akureyri. Konan virðist hins vegar vera farin úr landi.Konunni er birt ákæra í Lögbirtingablaðinu. Hún er erlend og á fimmtugsaldri. Fram kemur að ekki sé vitað með vissu hvar konan sé niðurkomin en talið sennilegt að hún sé í Nígeríu.
Ákærð eftir að hafa auglýst óvenjulega þjónustu á Akureyri