Bandarískur ferðaáhrifavaldur sem kallar sig Passport Papi er nú staddur á Íslandi og finnst hann vera svikinn. Áhrifavaldurinn, sem einkum hefur aflað sér fylgjenda fyrir ferðalög sín um Suður-Ameríku, birti fyrstu færslu sína frá Íslandi í gær og sagðist þá hafa orðið fyrir vonbrigðum.
„Reykjavík, Ísland. Fyrstu kynnin eru ekki þau bestu. Ólíkt Osló í Noregi er ekki auðvelt að komast til borgarinnar frá flugvellinum. Það krefst klukkustundar rútuferðar sem kostar 40 dollara og manni er hleypt út á undarlegri rútustöð. Maturinn er jafnvel dýrari en í Noregi og ég sé engan skó í aðfluginu. Þetta virkar eins og eyðilegt land sem laðar að sér granóla-ferðamenn, þessa týpu sem maður myndi hitta fyrir í suðurhluta Chile. Ég ætla að vera með opinn hug og næ vonandi að njóta dvalarinnar, en ég ætla ekki að ljúga – ég vildi óska þess að ég hefði verið aðeins lengur í Noregi.“
Áhrifavaldurinn birti svo aðra færslu í gærkvöldi þar sem hann velti fyrir sér hvort að Ísland hafi orðið ferðamannaland vegna góðrar markaðssetningar.
„Ísland, hrjóstug eyjuþjóð í Norður-Atlantshafi með aðeins 400 íbúum, sem fyrir eitthvað kraftaverk mokar inn rúmlega 3,2 milljörðum dollara á ári frá bandarískum ferðamönnum. Ísland hefur ekki komið sér upp ferðamannainnviðum á heimsmælikvarða og hefur ekki upp á nokkuð að bjóða sem ekki er hægt að finna annars staðar og verðlagið er það svakalegasta sem ég hef rekist á í öllum mínum ferðalögum… svo virðist sem þeir hafi einfaldlega markaðssett sig rétt. Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni.“
Nokkrum Íslendingum hefur sárnað þessi gagnrýni og benda áhrifavaldnum á að myndbönd hans eru annars vegar frá Hallgrímskirkju og hins vegar frá malbikinu á hringveginum. Passport papi svaraði því þá að gullni hringurinn svokallaði er í raun lítið annað en langur kafli af malbiki. Aðrir ferðamenn sem hafa heimsótt landið hafa einnig skrifað athugasemdir og lýsa jákvæðri reynslu frá Íslandi. Vissulega sé dýrtíðin nokkur en á Íslandi megi finna óbeislaða náttúru og magnaða orku sem birtist í hverum, jarðhita eldgosum. Þetta sé fegurð sem ekki sé hægt að finna annars staðar en einmitt á Íslandi.