Áhorf á Eurovision dróst saman á milli ára en 131 milljón manns horfðu á beinu útsendinguna á úrslitunum, samkvæmt nýjum tölum frá Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU.
Áhorfendur mældust um 35 milljónum færri en árið áður, en þeir voru 166 árið 2025. Fimm aðildarríki sniðgengu keppnina vegna þátttöku Ísraels. Holland, Ísland, Spánn, Írland og Slóvenía tóku ekki þátt í keppninni í ár og þau þrjú síðarnefndu sýndu auk þess ekki útsendinguna í sjónvarpi.
Keppnin var haldin í Vín í Austurríki og lauk með sigri Búlgaríu sem vann í fyrsta skipti í sögu keppninnar með lagið Bangaranga í flutningi söngkonunnar DARA. Ísrael hafnaði í öðru sæti, annað árið í röð.
Þrátt fyrir samdrátt í heildaráhorfi segja skipuleggjendur hefðbundið sjónvarpsáhorf áfram sterkt í alþjóðlegum samanburði. Keppnin hafi jafnframt haldið áfram að ná mikilli útbreiðslu meðal yngri áhorfenda og á stafrænum miðlum.
Áhorf var sérstaklega hátt á Norðurlöndum. Mesta áhorfið var í Finnlandi þar sem áhorfshlutfallið var 92,3 prósent sem er hæsta áhorfshlutfall allra tíma í Finnlandi og það mesta síðan 2007. Svíþjóð, Noregur og Danmörk skráðu áhorfshlutföll á bilinu 79 til 86 prósent.
Í 14 af 35 mældum mörkuðum fór áhorf yfir 50 prósent, samkvæmt EBU, sem segir það staðfesta áframhaldandi sterka stöðu keppninnar í sjónvarpi þrátt fyrir aukna samkeppni frá stafrænum miðlum.
EBU segir jafnframt að keppnin hafi haldið áfram að styrkjast meðal ungs fólks. Áhorf meðal 15 til 24 ára nam 54,8 prósentum, sem er yfir meðaltali sjónvarpsstöðva á viðkomandi mörkuðum.
Þrátt fyrir samdrátt í línulegu sjónvarpi jókst umfang keppninnar verulega á stafrænum vettvangi. Samkvæmt EBU náði efni tengt Eurovision yfir 2,75 milljörðum áhorfa á samfélagsmiðlum frá janúar til maí. YouTube-útsending keppninnar fékk 5,43 milljón áhorfendur á úrslitin og stafrænar rásir keppninnar héldu áfram að vaxa, meðal annars á TikTok og Instagram.
Alls greiddu 148 lönd atkvæði í keppninni í ár, sem er aukning um tvö lönd frá því í fyrra. Utan þátttökuríkja komu flest atkvæði frá Bandaríkjunum, Kanada, Spáni, Írlandi, Slóvakíu og Tyrklandi.
Keppnin verður haldin í Búlgaríu árið 2027 í kjölfar sigurs landsins í ár.