Átta manna áhöfn ferjunnar sem hvolfdi undan ströndum Norður-Kýpur í gær hefur verið handtekin og var leidd fyrir dómara í morgun.
Ünal Üstel, sem er forsætisráðherra hins yfirlýsta tyrkneska lýðveldis Norður-Kýpur (sjá útskýringar að neðan), sagði í færslu á samfélagsmiðlum að áhöfnin væri í haldi vegna rannsóknar á því hvað olli því að ferjunni hvolfdi. Einn björgunarmanna sagði við BBC að vont hefði verið í sjóinn og að áhöfnin hefði átt að bíða eftir betra veðri áður en lagt var úr höfn.
Átta eru látnir og 18 er saknað eftir slysið. 241 var bjargað. Ekkert hefur verið gefið upp um þjóðerni þeirra. Leit að þeim sem saknað er stendur enn yfir.
Skortur á björgunarbúnaði
Ferjan lagði upp frá Girne í norðurhluta Kýpur í gærmorgun og var á leið til meginlands Tyrklands. Slysið átti sér stað skömmu eftir að hún lagði úr höfn. Nokkrir farþegar segjast hafa heyrt sprengingu í stefni ferjunnar. Leki kom svo að henni sem varð á endanum til þess að hún sökk. Vitni segja að skortur hafi verið á björgunarbúnaði og að fólk hafi þurft að stökkva í hafið án björgunarvesta eða bjarghringja.
Kýpur hefur verið skipt frá árinu 1974 þegar Tyrkir hernámu norðurhluta landsins sem viðbragð við tilraun til valdráns. Sú tilraun var gerð að undirlagi grískra stjórnvalda og var tilgangurinn að innlima Kýpur í Grikkland. Norðurhlutinn lýsti yfir sjálfstæði árið 1983 undir nafninu Tyrkneska lýðveldið Norður-Kýpur. Tyrkland er eina þjóðin sem viðurkennir sjálfstæðið. Alþjóðasamfélagið lítur á landið sem yfirráðasvæði Kýpur undir hernámi Tyrkja.