Afvegaleiðing umræðunnar

Eldur Smári Kristinsson skrifar:
Núna er ég búinn að kafa aðeins ofan í þetta upphlaup Jasmínu Vajzovic vegna færslu sveitarstjóra Ölfuss, Elliða Vignissonar.
Jasmína sem er augljóslega löngu búin að læra af íslenskum vinstrisinnuðu kynsystrum sínum sem eru allar á bólakafi í gremju-og froðufræðum sem eru aðallega iðkuð í Aumingjasmiðju Ríkisins (Háskóla Íslands) að nýta hvert tækifæri sem gefst til þess að afvegaleiða umræðuna með því að gera sjálfa sig að aðalatriðinu og hugsanlegu fórnarlambi frjálsrar umræðu.
„Ég er múslimi, Elliði. Me me me. Hvað hef ég gert rangt?”
Jasmína er bosniak- múslimi að eigin sögn. Þannig að ég ákvað að skoða aðeins nánar hvað það eiginlega þýðir.
Eftir að hafa lesið mér til aðeins í dag, þá er niðurstaðan mín á auðveldu mannamáli á þá leið að ef trúarbrögðin og hugmyndafræðin sem ég, Elliði og fleiri erum að gagnrýna er Coca-Cola, þá er þetta mjög fámenna afsprengi íslam sem Jamina tilheyrir Coca Cola Zero ásamt því að vera Zero Caffeine. Semsagt sykurlaust og koffínlaust kók.
Innan við 30% bosniak múslima biðja eða fara í moskur.
Þeir skilgreina sig sem “ secular menningarmúslima”. Þeir fasta ekki Ramadan og drekka áfengi.
92% styðja frelsi kvenna til þess að velja að klæðast hijab og álíka.
Þeir hafna Sharía lögum og dómstólum.
Þeir eru algjörlega andsnúnir því að grýta fólk til bana og eru andvígir trúarlegu ofbeldi.
Semsagt, Íslam sem Jasmína fylgir eða tilheyrir er algjört Coca-Cola Zero Zero.
Það hefur ekkert með umræðuna um fjöldainnflutning múslima frá MENAPT löndunum af gera.