Í dag verður sunnanátt, þrír til tíu metrar á sekúndu og fremur vætusamt, einkum um sunnan- og vestanvert landið. Hitinn verður á bilinu níu til sextán stig, hlýjast fyrir norðan og austan.
Fremur milt verður í veðri en þegar vindáttin verður norðlæg má búast við svalara lofti að norðanverðu landinu af og til. Slydda gæti verið til fjalla.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Suðvestan 5-13 m/s. Skúrir, en léttir til austanlands. Hiti 7 til 13 stig, svalast á Vestfjörðum. Snýst í norðvestlæga átt um landið norðanvert um kvöldið með rigningu eða slyddu og kólnar.
Á laugardag:
Hægt minnkandi norðan- og norðvestanátt. Rigning eða slydda á norðanverðu landinu, en þurrt sunnantil. Hiti 2 til 14 stig, mildast suðaustanlands. Styttir upp fyrir norðan um kvöldið.
Á sunnudag:
Fremur hæg austlæg átt. Skýjað og væta af og til um landið sunnanvert, en þurrt að kalla fyrir norðan. Hiti 7 til 12 stig.
Á mánudag:
Norðlæg átt, skýjað að mestu en úrkomulítið. Hiti 6 til 12 stig, mildast sunnantil.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir norðanátt með rigningu á köflum og svölu veðri á norðanverðu landinu, en bjart með köflum sunnanlands og mildara.
Á miðvikudag:
Líkur á austanátt með rigningu syðra en þurrt fyrir norðan. Hiti svipaður áfram.