Já-sinnahreyfingin SJÁ segist hafa safnað um 80 milljónum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Um 67 milljónir hafi farið í auglýsingar. Hreyfing nei-sinna, Áfram Ísland, hefur að eigin sögn varið rúmlega 90 milljónum króna í baráttuna.
Gréta María Grétarsdóttir hjá SJÁ segir um 46% styrkja hreyfingarinnar hafa komið frá einstaklingum og 54% frá fyrirtækjum. Fjármagnið hafi skipst á milli framleiðslu og birtingu auglýsinga auk þess sem eitthvað fjármagn hafi farið í viðburði, leigu kosningamiðstöðvar og annað tilfallandi.
En við munum ekki segja meira heldur en fyrirtæki og einstaklingar. Þegar við vorum að safna þá sögðum við fólki að við myndum ekki gefa upp nöfn þannig við munum standa við það.
Aðspurð kveðst hún telja SJÁ hafa háð baráttuna af ábyrgð. Þau taki undir gagnrýni á að litlar sem engar reglur gildi um fjármögnun og auglýsinga- og netbaráttu hreyfinganna.
Já, ég held að við tökum bara undir það og ég hef svo sem sagt það áður að í svona baráttu geta peningar haft mikil áhrif. Þannig að það er líka alveg ágætt að vita hvaðan þeir eru að koma og hvort það séu einhverjir hagsmunir á bak við sem eru að reyna að hafa áhrif á niðurstöður kosninga.
Fullt af fólki sem vill ekki láta nafns síns getið
Fréttastofa hafði einnig samband við Halldór Benjamín Þorbergsson, stjórnarformann samtakanna Áfram Ísland, fyrir hádegisfréttir með sömu spurningar.
Hann vísaði til svars síns í kappræðum RÚV í síðustu viku. Annars sagði hann þessu verkefni lokið af sinni hálfu og að hann sneri sér nú að öðru.
Í kappræðunum sagði hann að Áfram Ísland hefði varið svipað miklu og Samfylkingin gerði fyrir síðustu Alþingiskosningar sem hefðu verið um 90 milljónir. Spurður hvort bókhald hreyfingarinnar yrði birt sagðist hann sjálfur vera fylgjandi gagnsæi.
En ég held að það sé bara dæmi um það hvað þetta mál allt saman var unnið hratt að stjórnvöldum láðist að hugsa fyrir því að það yrði að skila þessu bókhaldi til Ríkisendurskoðunar. Ég held að það hefði verið betri leið. En við munum að sjálfsögðu bara uppfylla öll þau lög og reglur.
Spurður hvað væri því til fyrirstöðu svaraði hann á eftirfarandi vegu:
Náttúrulega bara trúnaður við fólkið sem hefur lagt okkur lið. Það er fullt af fólki sem vill ekki láta nafns síns getið.