Jómfrúin fagnar 30 ára afmæli í ár og af því tilefni hefur Jakob Einar Jakobsson, eigandi og framkvæmdastjóri, og samstarfsfólk hans, skipulagt marga smærri viðburði.
Eins og kom fram í Morgunblaðinu á dögunum eru veitingamenn frá Restaurant Møntergade í Kaupmannahöfn væntanlegir þangað um helgina og munu töfra fram sígilda danska rétti. Nýtt stell var tekið í notkun í byrjun árs og Sumarjazzinn verður sérlega metnaðarfullur á afmælisárinu í ár.
Við þetta bætist að sérstakt Jómfrúarbrennivín hefur nú verið framleitt og er komið í sölu á veitingastaðnum.
„Þegar ég heyrði í stjórnendum hjá Kveldúlfi varðandi það að gera afmælisútgáfu af Brennivíni með okkur á Jómfrúnni var strax vel í það tekið. Vissulega kom upp hugmynd hjá mér fyrst að gera afmælisbjór – en það er alltof mainstream fyrir Jommuna. Snaps með smörre-inu skal það vera!,“ segir Jakob Einar.
Hann segir Jómfrúarbrennivínið sérlega vel heppnað. „Það er mjúkt og smá sætt og það svífur jólaandi yfir því – negull, kanill og vanilla. Ég myndi para þetta með t.d. paté, purusteik og í raun öllum mat sem er svolítið feitur. En mér finnst hann líka góður t.d. með kaffinu, eftir matinn.
Við munum bjóða Jómfrúarbrennivínið út árið, hið minnsta. Hélað, í frosnu glasi – en borið fram með ást og virðingu fyrir afmælis-Jómfrúnni.“
Úlfar Þór Árdal Björnsson, yfireimari hjá Kveldúlfi Distillery, segir það sannan heiður að hafa fengið að gera þessa afmælisútgáfu fyrir Jómfrúna.
„Í þessari sérútgáfu erum við að feta nýja slóðir í framleiðslu á Brennivíni, þar höfum við tekið Brennivínið okkar og leyft því að þroskast á suðuramerískum Amburana-við, sem ljáir því hlýja kryddtóna af kanil, negul og vanillu. Með þessu erum við að færa Brennivínið nær þeim stíl sem við sjáum í norrænu tunnuþroskuðu ákavíti – og tíðkast að para með mat á fínum smørrebrød-stöðum í Danmörku.
Brennivín Jómfrúin afmælisútgáfa er framleidd í takmörkuðu upplagi og verður eingöngu í boði á veitingastöðum Jómfrúarinnar, á Lækjargötu og á Keflavíkurflugvelli.
Við erum hrikalega ánægð með útkomuna á vökvanum sem og útlit flöskunnar, sem kórónar þetta skemmtilega samstarf.“

