Bandarísk stjórnvöld hafa aflétt banni við kaupum á rússneskri olíu tímabundið. Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, sagði að ákvörðunin væri tilkomin til að auka stöðugleika á alþjóðlegum orkumörkuðum.
Þessar aðgerðir takmarkast þó við kaup á olíu sem nú þegar er um borð í rússneskum skipum á hafi úti. Þá má eingöngu kaupa olíuna af Rússum fram til 11. apríl næstkomandi.
Bessent sagði að þessar aðgerðir myndu ekki hafa marktæk áhrif á frjálslegan ágóða fyrir rússnesk yfirvöld því meirihluti olíutekna kæmi frá sköttum sem lagðir væru á vinnslustaði olíu.
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað mikið síðan Ísrael og Bandaríkin hófu árásir á Íran 28. febrúar. Hormússund er lokað fyrir alla olíuflutninga og því er ekki hægt að anna eftirspurn á heimsmörkuðum. Verð á Brent hráolíutunnu er nú yfir 100 dollurum sem hefur ekki gerst síðan í ágúst 2022.